4. maí 2023
4. maí 2023
Fréttabréf maí 2023
Fréttabréf Stafræns Íslands maí 2023. Kjarnaþjónustur Stafræns Íslands eru þessi misserin í innleiðingu hjá fjölda stofnana. Sem dæmi fóru 5.892 umsóknir í gegnum umsóknarkerfið í apríl.
Ráðgjöf frá Stafrænu Íslandi
Kjarnaþjónustur Stafræns Íslands eru þessi misserin í innleiðingu hjá fjölda stofnanana. Sömuleiðis er Stafrænt Ísland í ráðgefandi hlutverki og stuðningi við verkefnastjórn þegar kemur að stórum þverfaglegum verkefnum. Dæmi um slík verkefni eru rafrænar þinglýsingar þar sem sýslumenn, lánveitendur og lántakendur koma að borðinu. Sömuleiðis má nefna vinnuhóp sem vinnur að því að tryggja stafrænt aðgengi fatlaðra sem leitt er að félags- og vinnumálaráðuneytinu en ásamt Stafrænu Íslandi koma Heilsuvera og Auðkenni þar að. Þá er verkefni sem snýr að stafrænni þjónustu við eldra fólk komið í vinnslu, sömuleiðis leitt af félags- og vinnumálaráðuneytinu með stuðningi frá heilbrigðisráðuneytinu og Stafrænu Íslandi.
Staða innleiðingar á fjórum af kjarnaþjónustum Ísland.is:
Vefir stofnana: 13 vefir hafa flutt vefsvæði sitt á Ísland.is og 26 stofnanir vinna að flutningi.
Stafræna pósthólfið: 65 opinberir aðilar vinna að innleiðingu á Stafræna pósthólfinu og 37 eru þegar farnir að birta.
Umsóknarkerfi Ísland.is: 15 stofnanir nýta umsóknarkerfi Ísland.is og fleiri á leiðinni
Umsóknarkerfi Ísland.is: 5892 umsóknir fóru í gegnum kerfið í apríl - mun fleiri umsóknir eru í vinnslu en þessi fjöldi var afgreiddur að fullu.
Innskráning fyrir alla: 25 opinberir aðilar nýta nýju innskráningarþjónustu Ísland.is með 280 þúsund innskráningum á mánuði.
14 rafrænar þinglýsingar þrátt fyrir 1. maí lokun
14 lántakendur greiddu upp húsnæðis- og bílalánin sín þann 1. maí þrátt fyrir lokanir. Enginn akstur og enginn pappír.
Gamla innskráningarþjónustan lokar
Unnið er að lokun eldri innskráningarþjónustu Ísland.is og er lokun nýskráninga hluti af því ferli. Opinberum aðilum er beint í Innskráningu fyrir alla, nýja innskráningaþjónustu Ísland.is.
Frétt um eldri innskráningarþjónustuna
Réttindi & skyldur
Réttindi og skyldur einstaklinga á Íslandi eru skýr samkvæmt lögum frá fæðingu til andláts. Réttindi segja til um hvers einstaklingur getur krafist af samfélaginu, en skyldur segja til um hvaða kröfur samfélagið getur gert til einstaklings. Yfirlit yfir helstu réttindi og skyldur er nú að finna á Ísland.is.
Lesa meira um Réttindi & Skyldur
Stjórnborð Ísland.is
Stjórnborð Ísland.is er vefsvæði fyrir stofnanir sem heldur utan um notendastýringu og sjálfafgreiðslukerfi sem Stafrænt Ísland hefur þróað fyrir kjarnaþjónustur Ísland.is.
Tilkynning um stríðsglæpi
Ný þjónusta hefur bæst við á Ísland.is fyrir flóttafólk frá Úkraínu. Lögreglan er þjónustuaðili þessara tilkynninga og heldur utan um alla skráningu.
Stafræna spjallið - Mínar síður Ísland.is
Mínar síður Ísland.is er umræðuefni Stafræna spjallsins að þessu sinni.
Stafræna spjallið: Mínar síður Ísland.is
Meðal verkefna Stafræns Íslands eru:
Ákvörðun um skipti dánarbús
Birting á einstaklingum með Verðbréfaréttindi á Íslandi
Birting á fasteignasalaskrá á Ísland.is
Birting á lögmannaskrá á Ísland.is
Eigendaskipti ökutækis
Eigendaskipti vinnuvéla og tækja
Endurnýjun einkamekis ökuréttindi
Endurnýjun ökuréttinda
Ísland.is app - Fjármál
Mínar síður: Fjármál, hreyfingar á tímabilinu
Mínar síður: Hugverkaréttindin mín
Mínar síður: Námsferilsyfirlit brautskráðra frá Háskóla Íslands
Mínar síður: Námsyfirlit úr INNU
Mínar siður: Starfsleyfi heilbrigðisstarfsfólks
Mínar síður. Vélar og tæki
Panta skráningarnúmer ökutækis
Rafræn erfðafjárskýrsla
Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna
Samráðsgátt - uppfært notendaviðmót
Skráning leiðbeinanda fyrir æfingaakstur
Staðfesting á endurmenntun vegna verðbréfaréttinda
Staðfesting stafrænna ökuskírteina hjá Vínbúðunum
Stafræn umsókn um fæðingarorlof: Varanlegt fóstur og dvalarstyrkur
Stafrænt örorkuskírteini
Stafræn umsókn um vegabréf
Starfatorg ríkisins á Ísland.is
Tilkynning um vinnuslys
Umsókn um dvalarleyfi
Umsókn um endurnýjun dvalarleyfa ítrun
Umsókn um ES kortið
Umsókn um ríkisborgararétt ítrun
Umsókn um sannvottun
Umsókn um rekstarleyfi veitinga og gististaða
Umsókn um ökuritakort
Vefur gæða- og efrilitsstofnunar velferðarmála
Vefur Samgöngustofu á Ísland.is
Vefur Tryggingastofnunar á Ísland.is