27. september 2023
27. september 2023
Fjársýslan hlýtur viðurkenningu fyrir stafræn skref
Stafrænt Ísland veitti Fjársýslunni á dögunum viðurkenningu fyrir sex stafræn skref og þróun á greiðslu- og innheimtulausnum.
Á ráðstefnu sinni „Tengjum ríkið" veitti Stafrænt Ísland viðurkenningar til nokkurra stofnana sem hafa tekið skref framávið af níu stafrænum lausnum. Stafrænu skrefin eru hvataverðlaun fyrir opinbera aðila en öll níu skrefin eiga ekki við þjónustu þeirra allra.
Fjársýslan hlaut viðurkenningu fyrir eftirfarandi sex stafrænu skref:
Stafrænt pósthólf
Opinber aðili er tengdur með vefþjónustu og hefur sent notendum skjöl með tilstilli Stafræna pósthólfsins.Innskráning fyrir alla
Opinber aðili er tengdur við nýja innskráningarþjónustu Ísland.is - Innskráning fyrir alla.Umsóknarkerfi Ísland.is
Notendur geta sótt sér opinbera þjónustu til þjónustuaðila í gegnum umsóknarkerfi Ísland.isMínar síður Ísland.is
Opinber aðili nýtir Mínar síður Ísland.is til að miðla upplýsingum til viðskiptavina sinna.Vefsíða á Ísland.is
Opinber aðili rekur aðalvef sinn á Ísland.isStraumurinn
Opinber aðili nýtir Strauminn til að miðla gögnum til annarra opinberra aðila.
Sjöunda skrefið er í vinnslu hjá Fjársýslunni, sem mun gera notendum kleift að sjá hluta fjármála og jafnframt fá tilkynningu um inneignir í Ísland.is-appinu. Sú þjónusta verður vonandi sett í loftið í byrjun október 2023, en í appinu fá notendur aðgang að skjölum, umsóknum, skírteinum og fleiru sem tengist opinberri þjónustu.
Þau tvö skref sem Fjársýslan á eftir að uppfylla eru:
Spjallmennið Askur
Opinber aðili nýtir Ask til að þjónusta og eiga samskipti við notendur. Þjónustuaðili getur tekið þátt í efni og svörun Asks á Ísland.is þrátt fyrir að vera með eigin vefsíðu.
Þjónustuvefur á Ísland.is
Opinber aðili nýtir þjónustuvef Ísland.is til að auka sjálfsafgreiðslu notenda