30. október 2024
30. október 2024
Ert þú efni í ritstjóra Ísland.is?
Fjármála og efnahagsráðuneytið leitar að öflugum og metnaðarfullum ritstjóra til að leiða stefnumótun á framsetningu efnis á Ísland.is, þróa efnis- og aðgengisstefnu Ísland.is og styðja þannig við umbreytingar í stafrænni opinberri þjónustu.
Stafrænt Ísland er starfseining innan fjármála-og efnahagsráðuneytisins. Hlutverk hennar er að vinna með ráðuneytum, stofnunum og öðrum opinberum aðilum að því að efla stafræna þjónustu við almenning og tryggja þannig skýr, einföld og hraðvirk samskipti. Birtingamynd verkefna Stafræns Íslands gagnvart notendum er Ísland.is.
Hjá Stafrænu Íslandi starfar hópur sérfræðinga sem hefur það að leiðarljósi að einfalda líf fólks. Leitað er að drífandi aðila í teymið sem á auðvelt með að fá fólk í lið með sér og ná fram því besta hjá öðrum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ábyrgð á mótun og þróun efnis- og aðgengisstefnu Ísland.is þ.m.t. framsetningu efnis
Ritstýring og eftirfylgni með gæðum upplýsinga á Ísland.is, þ.m.t. grisjun efnis
Tryggja samræmingu og samlegð efnis á Ísland.is, í umsóknum, í spjallmenni og í Ísland.is appinu
Ábyrgð á umgjörð samskipta og fræðsla til vefstjóra opinberra aðila
Gerð leiðbeininga og viðhald á handbók vefstjóra
Eftirfylgni með þýðingum efnis á Ísland.is
Samstarf við vörustjóra Ísland.is í framsetningu efnis og þjónustu
Þátttaka í stefnumótun og áætlanagerð Stafræns Íslands
Hæfniskröfur
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla af stýringu fjölbreyttra verkefna
Færni og reynsla af því að miðla þekkingu
Mikil færni í mannlegum samskiptum og leiðtogahæfileikar
Jákvætt hugarfar, þjónustulund og frumkvæði
Skipulagshæfni, öguð og sjálfstæð vinnubrögð
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.Um fullt starf er að ræða og starfið er tímabundið til tveggja ára. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. gildandi reglur um auglýsingar lausra starfa.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.11.2024
Nánari upplýsingar veitir
Birna Íris Jónsdóttir, birna.jonsdottir@fjr.is
Ragnheiður Valdimarsdóttir, ragnheidur.valdimarsdottir@fjr.is