11. maí 2022
11. maí 2022
Endurskoðuð fyrirmæli landskjörstjórnar um skilríki umboðsmanna
Landskjörstjórn hefur endurútgefið fyrirmæli sín um skilríki umboðsmanna með þeirri breytingu að kveðið er á um að upplýsingar um heiti þess framboðs sem umboðsmaður kemur fram fyrir skulu einungis koma fram á bakhlið skilríkisins.
Fyrirmæli landskjörstjórnar um skilríki umboðsmanna
Samkvæmt 3. mgr. 53. gr. kosningalaga nr. 112/2021 skal yfirkjörstjórn sveitarfélags útbúa sérstök skilríki fyrir umboðsmenn samkvæmt nánari fyrirmælum landskjörstjórnar. Fyrirmæli landskjörstjórnar eru svohljóðandi:
Á framhlið skilríkja umboðsmanna skulu að lágmarki koma fram eftirfarandi upplýsingar:
Útgáfunúmer skilríkis
Nafn umboðsmanns
Mynd af umboðsmanni
Heiti sveitarfélags
Gildistími skilríkis, t.d. sveitarstjórnarkosningar 2022.
Undirritun útgefanda
Á bakhlið skilríkja umboðsmanna skal tilgreina heiti þess framboðs sem umboðsmaður starfar fyrir.
Skilríki umboðsmanns skal undirritað af fulltrúa yfirkjörstjórnar sveitarfélags og í gerðabók skal bóka útgáfunúmer skilríkis, nafn umboðsmanns, kennitölu og heiti þess framboðs sem um ræðir.
Yfirkjörstjórn ræður að öðru leyti formi og stærð skilríkis sem skulu þannig úr garði gerð að þau megi bera með þeim hætti að þau séu sýnileg, t.d. sem barmmerki, í plastvasa sem hengja má um hálsinn.
Reykjavík 11. maí 2022
Landskjörstjórn