Fara beint í efnið

8. ágúst 2024

Drónabann yfir 60 metra hæð yfir jörðu - uppfært 8. ágúst 2024

Vegna eldgoss og nauðsynlegs neyðar- og rannsóknaflugs, hefur Samgöngustofa að beiðni Samhæfingarstöðvar Almannavarna bannað drónaflug yfir 60 metrum yfir jörð og ofar, á svæði sem nær í tveggja sjómílna radius umhverfis eldgosasvæðið á Reykjanesi. Bannið gildir til miðnættis að kvöldi 28. ágúst nk.

Samgöngustofa dróni

Bannið er á svæði sem nær í tveggja sjómílna radius umhverfis eldgosið, miðað er við hnit 635300N02223W, afmarkað sem rauður hringur á mynd.

Bannið gildir til miðnættis að kvöldi 28. ágúst nk. Undanþágubeiðnir berist samhæfingarstöð Almannavarna í netfangið info@sst.is eða í síma 831-1644.

Fréttin var uppfærð 8. ágúst með framlengdum gildistíma.