19. janúar 2024
19. janúar 2024
80% hafa skráð kílómetrastöðu á Ísland.is
80% skráningar hafa þegar skilað sér en frestur til skráninga rennur út á morgun 20.janúar.
80% þeirra sem eiga rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla hafa nú skráð kílómetrastöðu á Mínum síðum Ísland.is eða í Ísland.is appinu og eru skráningarnar orðnar rúmlega 40 þúsund. Um áramótin tók gildi kílómetragjald fyrir notkun slíkra bíla og hafa eigendur frest til 20. janúar til að skrá kílómetrastöðuna.
Kílómetragjaldið byggist á fjölda ekinna kílómetra og því munu þeir greiða sem nota vegakerfið. Gjaldið verður 6 kr/km fyrir rafmagns- og vetnisbíla en 2 kr/km fyrir tengiltvinnbíla.
Fyrsti gjalddagi vegna kílómetragjalds er 1. febrúar og eindagi 14 dögum síðar.Þeir sem ekki skrá bíla sína fyrir 20. janúar fá reikning fyrir áætlaðri notkun sem miðast við meðalakstur fólksbíls, eða rétt rúmlega sjö þúsund krónur á mánuði. Með skráningu á kílómetrastöðu á Ísland.is munu greiðslur endurspegla notkun bíls.
Áfram stutt við kaup á rafbílum
Stjórnvöld munu halda áfram að styðja við kaup á rafmagns- og vetnisbílum þó að form stuðningsins hafi breyst um áramótin. Veittur verður beinn stuðningur við kaup á slíkum bílum í stað ívilnunar í virðisaukaskatti. Orkusjóður mun annast afgreiðslu styrkjanna. Umsækjendur sækja um með stafrænum hætti á Mínum síðum á Ísland.is. Allar nánari upplýsingar um styrkafgreiðslu er að finna á vef Orkusjóðs og á Ísland.is. Því verður áfram verulegur ávinningur af orkuskiptum fyrir bíleigendur.
Upplýsingasíða um skráningu kílómetrasgjalds á Ísland.is
- reiknivél er á leiðbeiningasíðunni sem auðveldar fólki að áætla gjaldið
Nánari upplýsingar um innleiðingu kílómetragjalds: Vegir okkar allra