Fara beint í efnið

20. september 2024

Sjúkratryggingar auglýsa eftir aðila til viðræðna um sjúkraflug til útlanda

Áformað er að semja við einn aðila um ábyrgð á sjúkraflugi til útlanda.

Sjúkratryggingar lógó

Með sjúkraflugi er átt við sjúkraflug til og frá Íslandi í sjúkraflugvél með sjúklinga sem eru sjúkratryggðir samkvæmt lögum um sjúkratryggingar nr. 112/2008. Er þar átt við bæði flutning alvarlegra sjúkra og slasaðra sem geta ekki notað venjulegar farþegaflutningsleiðir auk þeirra sem þurfa að komast án tafar í líffæraígræðslu erlendis.

Samið verður um blandaða leið þar sem bæði verður lögð áhersla á rekstur innlendra flugrekstraraðila auk þess sem bjóða þarf upp á þann möguleika að boða sjúkraþotur erlendis frá þegar nauðsyn krefur. Lögð er áhersla á gott framboð vélarkosta með fullnægjandi aðbúnað. Félag sem tekur að sér sjúkraflug til útlanda þarf að bjóða upp á útkallsþjónustu með ábyrgð á svörun, samskiptum og framkvæmd sjúkraflutningsins. Samið verður við einn aðila sem ber fulla ábyrgð á verkinu, bæði vinnu vegna útkallsins og einnig viðeigandi flugrekstur og/eða samningsgerð við flugrekstraraðila. Ábyrgðaraðili þarf jafnframt að gæta að hagkvæmni, gæðum og eftirliti með viðsemjendum.

Auglýsing þessi og samningsgerð í kjölfar hennar fer fram á grundvelli IV. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008. Val byggir á því hvaða aðili uppfyllir ofangreindar kröfur með bestum hætti. Samið verður til allt að þriggja ára.

Aðilar sem vilja lýsa yfir áhuga á verkefninu sendi erindi á innkaup@sjukra.is eigi síðar en 1. október n.k. Val viðsemjanda verður tilkynnt í kjölfarið. Gert er ráð fyrir því að nýr samningur taki gildi þann 1. janúar 2025.

Í erindi skal koma fram eftirfarandi:

  • Upplýsingar um boðinn vélarkost.

  • Upplýsingar um verð til eins árs, að lágmarki annað hvort:

Blokktíma (tímagjald sem miðast við heildarfartíma (blokktíma))

Föst verð til helstu áfangastaða, þ.e. Gautaborgar, Stokkhólms, Malmö og Kaupmannahafnar.

  • Upplýsingar um mögulegan grunnkostnað vegna viðbragðs- og útkallsþjónustu.

  • Sé verð mismunandi eftir tegund vélar skal verð tilgreint fyrir hverja tegund fyrir sig.

  • Upplýsingar um verkferla við útkallsþjónustu.

  • Rökstuðningur fyrir hæfni með hliðsjón af kröfum í kröfuskjali.

Athugið: Eftirfarandi kostnaður er greiddur sérstaklega af Sjúkratryggingum og hefur ekki áhrif á boðið verð:

  • Kostnað við heilbrigðisstarfsfólk og sjúkraflutningamann, þegar á þarf að halda.

  • Kostnað vegna sjúkrabíla ef á þarf að halda.

  • Annan sérstakan kostnað sem til fellur og snýr ekki að verksala, m.a. tolla, afgreiðslugjöld, opnunargjöld flugvalla ef flogið er utan afgreiðslutíma þeirra sem og gistingu áhafnar gerist þess þörf.