25. ágúst 2023
25. ágúst 2023
Rafrænar umsóknir um þátttöku Sjúkratrygginga í tannlækningum
Sjúkratryggingar hafa sett upp vefþjónustur til að taka rafrænt á móti eftirtöldum umsóknum um þátttöku Sjúkratrygginga í tannlækningum.
Umsókn um endurgreiðslu á kostnaði vegna tannlækninga (IV.kafli)
Umsókn um endurgreiðslu á kostnaði vegna tannréttinga (IV. kafli)
Umsókn um þátttöku í kostnaði vegna tannlækninga (II. – III. kafli)
Nú geta þjónustuaðilar tölvukerfa tannlækna óskað eftir gögnum um þessar vefþjónustur til að aðlaga sín kerfi að nýju rafrænu umsóknunum, með því að hafa samband við Upplýsingatæknisvið Sjúkratrygginga á netfangið hjalp@sjukra.is