Umsókn um styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða 2025
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Umsóknarfrestur
Umsóknartímabilið er frá og með 12. september til kl. 13 þriðjudaginn 15. október 2024. Umsóknir sem berast eftir þann tíma koma ekki til álita.
Umsóknarfrestur er liðinn
Umsóknir
Umsækjandi er beðinn um að velja annaðhvort eyðublað I eða II eftir eðli verkefnisins.
I - Þjónusta/aðstaða á ferðamannastað eða ferðamannaleið
Um er að ræða:
Verkefni á stað, sem ekki er nú þegar skilgreindur sem ferðamannastaður en viðkomandi hefur áhuga að gera hann að slíkum - ný uppbygging.
Nýja þjónustu eða aðstöðu á þegar skilgreindum ferðamannastað. Framkvæmdin mun auka afköst staðarins/svæðisins og/eða tengist öryggi eða náttúruvernd.
II - Úrbætur vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið
Um er að ræða:
Verkefni þar sem verið er að bæta eða lagfæra núverandi aðstöðu á ferðamannastað sem tengist öryggi eða náttúruvernd.
Aukin afköst við móttöku ferðamanna en þjónustustig er ekki hækkað. Ef um skipulags- og/eða byggingarleyfisskylda framkvæmd er að ræða, þá þarf að velja I – (Ný) þjónusta/aðstaða á ferðamannastað / ferðamannaleið.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
Öryggi ferðamanna.
Náttúruvernd, viðhaldi og uppbyggingu ferðamannastaða og ferðamannaleiða.
Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda. Fyrirhuguðu verkefni skal í umsókn lýst svo skilmerkilega að mögulegt sé að meta styrkhæfi þess.
Sérstök áhersla er lögð á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils
Í úthlutuninni er lögð áhersla á minna sótt svæði og lengingu ferðatímabils. Gæðamat sjóðsins mun taka mið af þessari áherslu og eru umsækjendur hvattir til að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins sem mun liggja fyrir á heimasíðu Ferðamálastofu, www.ferdamalastofa.is, á umsóknartíma.
Nánar á vef Ferðamálastofu
Athugið að innskráningartími í umsóknarkerfinu eru 45 mínútur frá því að smellt er á "Vista og áfram" hnappinn. Eftir það þarf umsækjandi að skrá sig inn aftur. Við mælum því eindregið með því að smella á "Vista og áfram" hnappinn reglulega til þess að umsækjandi haldast innskráður.
Eftir að umsókn er send inn birtist valmöguleikinn Sækja öll gögn umsóknar á pdf. Við mælum eindregið með að umsækjandi nýti sér þennan valkost og visti gögnin hjá sér.
Þjónustuaðili
Ferðamálastofa