Flutningur í opið fangelsi
Í flestum tilvikum hefur fólk afplánun í Fangelsinu á Hólmsheiði en flutningsteymi Fangelsismálastofnunar ákveður hvort viðkomandi afpláni þar allan tímann eða verði fluttur í annað fangelsi.
Sækja þarf sérstaklega um flutning milli fangelsa með sérstöku eyðublaði.
Það sem hefur áhrif á að fangi komist í opið fangelsi er meðal annars hegðun í fangelsi, ólokin mál hjá lögreglu eða dómstólum, aldur, hvort hann stundar vinnu og/eða nám í fangelsinu, hvort hann hafi tekið á fíknivanda sínum hafi slíkur vandi verið til staðar, hvort hann er háður lyfjum og hvort hann ætli á Vernd.
Þjónustuaðili
Fangelsismálastofnun