Leyfi til reksturs ferðaskrifstofu
Ferðaskrifstofa er aðili, hvort sem er einstaklingur eða lögaðili, sem setur saman, skipuleggur, býður og/eða selur pakkaferðir eða hefur milligöngu um sölu samtengdrar ferðatilhögunar í atvinnuskyni, hvort sem er að eigin frumkvæði eða eftir beiðni viðskiptavinar, innanlands eða erlendis.
Leyfi Ferðamálastofu þarf til að starfrækja ferðaskrifstofu. Sækja ber um leyfi a.m.k. tveimur mánuðum áður en fyrirhuguð starfsemi á að hefjast. Útgefið leyfi er ótímabundið.
Sala pakkaferða og samtengdrar feðratilhögunar er tryggingarskyld. Allir sem selja pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun verða að hafa tryggingar fyrir slíkri sölu. Tryggingarfjárhæðin er endurreiknuð árlega. Árlegt endurmat tryggingarfjárhæða ferðaskrifstofa
Umsókn um leyfi
Umsóknir um leyfi til reksturs ferðaskrifstofu eru tvenns konar, annars vegar fyrir lögaðila og hins vegar fyrir einstaklinga.
Vinsamlegast athugið að ef sótt er um í nafni fyrirtækis þarf prókúruhafi fyrirtækisins að sækja um en nálgast má upplýsingar um prókúruskráningu hjá Skattinum.
Trygging samkvæmt lögum um pakkaferðir og samtengda ferðatilhögun
Beiðni um niðurfellingu ferðaskrifstofuleyfis
Breyting á forsvarsmanni
Þjónustuaðili
Ferðamálastofa