Skráningarkerfi fyrir slys og næstum því slys á sjó
ATVIK- sjómenn er rafrænt og miðlægt atvikaskráningarkerfi á netinu sem aðstoðar útgerðir við að halda utan um öll atvik sem snúa að öryggi í vinnuumhverfi sjómanna og slysum sjómanna um borð í skipum þeirra.
Sjómenn geta skráð eftirfarandi atvik sem snýr að öryggi og aðbúnaði þeirra um borð:
Ábendingar um t.d. hættur í vinnuumhverfi og óöruggur búnaður
Næstum slys
Minniháttar slys
Fjarveruslys
Ógn, t.d. einelti, kynferðislega áreitni og ofbeldi
Tilgangur og markmið
Skráning atvika í ATVIK-sjómenn myndar mikilvægar upplýsingar sem veitir heildarsýn á umfangs á atvikum til sjós, sem nýtast í forvarnastarfi hjá útgerðum og stuðlar að öruggara vinnuumhverfi fyrir sjómenn.
Aðstoð og frekari upplýsingar um kerfið er hægt að fá með að senda tölvupóst á netfangið atviksjomenn@samgongustofa.is
Þjónustuaðili
SamgöngustofaTengd stofnun
Rannsóknarnefnd samgönguslysaTengd stofnun
Landhelgisgæsla Íslands