Ársskýrslur slysaskráningar
Samgöngustofa tekur saman upplýsingar sem notaðar eru til greiningar á umferðaröryggismálum á íslandi og til stefnumörkunar í baráttunni fyrir bættu umferðaröryggi.
Markmið stjórnvalda á Íslandi í umferðaröryggismálum
Að fjöldi látinna í umferðinni á hverja 100 þúsund íbúa verði ekki meiri en það sem lægst gerist hjá öðrum þjóðum, fyrir árið 2034.
Að fjöldi látinna og alvarlegra slasaðra í umferðinni lækki að jafnaði um 5% á ári til ársins 2034.
Grunngildi fyrir seinna markmiðið er meðaltal áranna 2013-2017.
Nokkur atriði úr slysaskýrslu 2023
8 einstaklingar létust í jafnmörgum slysum.
Einn erlendur ferðamaður lést sem og tveir erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis.
Sex karlmenn og tvær konur létust en af þeim 12 ökumönnum sem komu við sögu í banaslysum var aðeins ein kona.
Þrír létust í þéttbýli en fimm utan þéttbýlis.
Einn lést út hópi gangandi og hjólandi, einn á bifhjóli og sex í bifreið.