Fara beint í efnið

Lögráðamenn einstaklinga sem hafa verið sviptir sjálfræði, fjárræði eða lögræði

Ef einstaklingur er sviptur sjálfræði, fjárræði eða hvoru tveggja með dómsúrskurði færast lögráðin til sýslumanns sem skipar viðkomandi lögráðamann.

Lögráðamaðurinn er valinn í samráði við hinn ólögráða, sem getur óskað eftir því að tiltekinn aðili verði skipaður lögráðamaður hans. Oft eru lögráðamenn starfandi lögmenn.

Ef einstaklingur hefur verið sviptur sjálfræði

Lögráðamaður sjálfræðissvipts einstaklings hefur heimild til að taka nauðsynlegar ákvarðanir um þá persónuhagi sem hann er ófær um að taka sjálfur. Ákvörðunin er bindandi eins og hinn sjálfræðissvipti hefði gert hana sjálfur.

Lögráðamaður einstaklings sem hefur verið sviptur sjálfræði þarf að skila skýrslu um skjólstæðing sinn til sýslumanns á 12 mánaða fresti.

Ef einstaklingur hefur verið sviptur fjárræði

Lögráðamaður ófjárráða einstaklings ræður yfir fé hans, nema lög segi til um annað.

Lögráðamaður hins fjárræðissvipta þarf að skila skýrslu til sýslumanns fyrir 1. apríl ár hvert, þar sem m.a.koma fram helstu ákvarðanir um eignir skjólstæðingsins sem teknar voru á liðnu ári.

Skýrsla um fjárhald, fyllist út af lögráðamanni eða ráðsmanni

Ráðstöfun eigna ófjárráða

Lögráðamanni ber að halda fjármunum skjólstæðings síns aðgreindum frá eigin fjármunum.

Eignir hins ófjárráða á að varðveita tryggilega og ávaxta eins og best verður á kosið á hverjum tíma.

Eignir ófjárráða einstaklings sem eru að verðmæti meira en 1.206.710 kr. skulu varðveittar og ávaxtaðar í samráði við sýslumann.

Lögráðamaður þarf samþykki sýslumanns til allra meiriháttar eða óvenjulegra ráðstafana á fjármunum hins ófjárráða, til dæmis:

  • Greiðslu kostnaðar af framfærslu eða námi

  • Kaups eða sölu fasteignar, loftfara, skipa eða ökutækja

  • Leigusamnings um fasteign hins ófjárráða

  • Veðsetningu eigna

  • Fyrirframgreiðslu arfs

Beiðni lögráðamanns um samþykki sýslumanns vegna ráðstafana á eignum ófjárráða skjólstæðings, þarf að senda sýslumanni á þar til gerðu eyðublaði.

Beiðni þarf að rökstyðja og gæta þess að nauðsynleg gögn fylgi með.

Beiðni um samþykki yfirlögráðanda

Nánar um fyrirframgreiðslu arfs

Meginreglan er sú að varðveita skal og ávaxta fjármuni ófjárráða. Þó getur yfirlögráðandi við sérstakar aðstæður fallist á beiðni lögráðamanns um útgreiðslu arfs fyrirfram.

Hvert mál er skoðað vandlega með hliðsjón af atvikum hverju sinni en umsóknir þurfa m.a. að uppfylla neðangreind skilyrði:

  • Lögráðamaður viðkomandi verður að óska eftir því að arfur verði greiddur út

  • Um fjárræðissviptan einstakling verður að vera að ræða

  • Hinn fjárræðissvipti verður að vera kominn á efri ár

  • Líkamlegt og/eða andlegt ástand hins fjárræðissvipta verður að vera staðfest með nýju læknisvottorði, þar sem m.a. þarf að koma fram að ekki séu líkur á að breyting verði til batnaðar

  • Aðeins er heimilt að greiða arf til skylduerfingja

  • Veita verður upplýsingar um hverjir eru skylduerfingjar viðkomandi og þeir verða allir að samþykkja útgreiðsluna

  • Samþykki maka verður að liggja fyrir ef hann er til staðar.

  • Gæta verður að því að hinn fjárræðissvipti eigi eftir sem áður nægt fé til að standa straum af framfærslu sinni og öðrum nauðsynlegum kostnaði

  • Ganga verður úr skugga um hvort erfðaskrá liggi fyrir og ef svo er verður útgreiðsla arfs að taka mið af ákvæðum hennar.

Skyldur skipaðs lögráðamanns

Skipaður lögráðamaður skal vera fjárráða, vera ráðvandur og ráðdeildarsamur og að öðru leyti vel til starfans fallinn. Yfirlögráðandi gengur úr skugga um að þessum skilyrðum sé fullnægt m.a. með því að fá upplýsingar úr sakaskrá og um skuldastöðu viðkomandi við ríkissjóð.

Lögráðamanni ber að haga störfum sínum í þágu hins ólögráða eins og best hentar hag hans hverju sinni. Lögráðamaður skal hafa samráð við hinn ólögráða um framkvæmd starfa síns, eftir því sem við verður komið, nema um minni háttar ákvarðanir sé að ræða.

Lögráðamaður skal skila lögbundnum skýrslum til yfirlögráðanda og fara að fyrirmælum hans, laga og dómsmálaráðuneytisins.

Skýrsla um fjárhald, fyllist út af lögráðamanni eða ráðsmanni

Þóknun skipaðs lögráðamanns

Sýslumaður ákveður upphæð þóknunar til skipaðs lögráðamanns með tilliti til eðlis og umfangs starfsins. Ef skipaður lögráðamaður er nákominn ættingi hins lögræðissvipta, er honum að jafnaði ekki greidd þóknun.

Að jafnaði er það hinn ólögráða sem greiðir þóknunina en í undantekningartilfellum er þóknunin greidd úr ríkissjóði.

Lesa má nánar um reglur vegna þóknunar og útlagðs kostnaðar skipaðra lögráðamanna á vef Stjórnartíðinda.

Ef þú ert ekki með rafræn skilríki má nálgast beiðni um samþykki á pdf formi hér

Ef þú ert ekki með rafræn skilríki má nálgast skýrslu um fjárhald á pdf formi hér

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15