Lögræði; sjálfræði og fjárræði
Lögræði greinist í: sjálfræði og fjárræði.
Sjálfræði felur í sér réttinn til að ráða persónulegum högum sínum, öðrum en fjármálum.
Fjárræði felur í sér réttinn til að ráða fjármálum sínum.
Einstaklingar verða lögráða við 18 ára aldur, bæði sjálfráða og fjárráða.
Svipting sjálfræðis, fjárræðis eða lögræðis
Ef nauðsyn krefur og önnur og vægari úrræði í formi aðstoðar hafa verið fullreynd, er heimilt með úrskurði dómara að svipta einstakling sjálfræði, fjárræði eða lögræði tímabundið. Ef einstaklingur er sviptur sjálfræði, fjárræði eða hvoru tveggja skipar sýslumaður honum lögráðamann.
Ástæður sviptingar geta verið að viðkomandi er ekki fær um að ráða persónulegum högum sínum eða fé:
vegna andlegs eða líkamlegs vanþroska
vegna ellisljóleika eða heilabilunar
vegna geðsjúkdóms
vegna annars konar alvarlegs heilsubrests
vegna ofdrykkju eða ofnotkunar ávana- og fíkniefna
Einstaklingur getur óskað sjálfur eftir því að vera sviptur sjálfræði, fjárræði eða lögræði en einnig geta meðal annarra maki, aðrir nánir aðstandendur og félagsmálayfirvöld lagt fram slíka kröfu.
Takmörkuð fjárræðissvipting
Svipta má mann fjárræði varðandi tilteknar eignir, svo sem fasteignir, skip, ökutæki, viðskiptabréf, innlánsreikninga og inneignir í verðbréfasjóðum.
Lok sjálfræðis-, fjárræðis-, eða lögræðissviptingar
Sviptingin er tímabundin og getur verið til sex mánaða eða lengur. Sjálfræðis-fjárræðis,- eða lögræðissvipting fellur sjálfkrafa niður að sviptingartímanum loknum, nema áður hafi verið gerð krafa fyrir dómi um framlengingu hennar. Takmörkuð fjárræðissvipting getur þó verið ótímabundin.
Hægt er að bera fram kröfu í héraðsdómi um að fella niður sviptingu ef ástæður þær sem lágu til grundvallar sviptingunni eru ekki lengur fyrir hendi.
Þjónustuaðili
Sýslumenn