Fara beint í efnið

Húsnæðisbætur

Umsókn um húsnæðisbætur

Upphæð húsnæðisbóta

Þú getur reiknað áætlaðar húsnæðisbætur sem þú átt rétt á með reiknivél húsnæðisbóta.

Ef þú ert ósammála ákvörðun um upphæð bóta geturðu óskað eftir endurútreikningi. Þá sendirðu rökstuðning og fylgigögn gegnum Mínar síður HMS eða með tölvupósti á hms@hms.is.

Óskertar húsnæðisbætur

Óskertar bætur miða við að tekjur séu lægri en neðri tekjumörk og eignir lægri en skerðingarmörk.

Húsnæðisbætur geta aldrei verið hærri en 75% af leiguverði.

Skattframtal þarf að vera í skilum til að hægt sé að reikna bæturnar.

Ef einhver á heimilinu á rétt á vaxtabótum fellur niður réttur til húsnæðisbóta.

Fjöldi heimilisfólks: 1

  • Hámarksbætur á ári: 609.504 krónur

  • Hámarksbætur á mánuði: 50.792 krónur

Fjöldi heimilisfólks: 2

  • Hámarksbætur á ári: 810.641 krónur

  • Hámarksbætur á mánuði: 67.553 krónur

Fjöldi heimilisfólks: 3

  • Hámarksbætur á ári: 944.732 krónur

  • Hámarksbætur á mánuði: 78.728 krónur

Fjöldi heimilisfólks: 4

  • Hámarksbætur á ári: 1.023.967 krónur

  • Hámarksbætur á mánuði: 85.331 krónur

Fjöldi heimilisfólks: 5

  • Hámarksbætur á ári: 1.109.298 krónur

  • Hámarksbætur á mánuði: 92.442 krónur

Fjöldi heimilisfólks: 6 eða fleira

  • Hámarksbætur á ári: 1.194.628 krónur

  • Hámarksbætur á mánuði: 99.552 krónur

Upphæðir húsnæðisbóta eru endurskoðaðar árlega við afgreiðslu fjárlaga.

Eigna- og tekjumörk

Eignir

Samanlagðar eignir allra á heimilinu (18 ára og eldri) verða að vera undir skerðingarmörkum. Eignir eru til dæmis innistæður á bankareikning, bílar, hjólhýsi, mótorhjól, fasteignir og hlutabréfaeign.

Miðað er við nettóeign (eignir mínus skuldir) samkvæmt skattframtali.

  • Ef eignir eru lægri en neðri mörk fást óskertar bætur.

  • Ef eignir eru hærri en efri mörk þá er enginn réttur til bóta.

  • Ef eignir eru á milli neðri og efri marka eru bætur skertar hlutfallslega af upphæðinni sem fer yfir neðri mörkin.

Neðri skerðingarmörk: 12,5 milljónir.

Efri skerðingarmörk: 20 milljónir.

Tekjur

Tekjumörk fara eftir fjölda fólks á heimilinu.

  • Ef tekjur eru lægri en neðri tekjumörk fást óskertar bætur.

  • Ef tekjur eru hærri en efri mörk þá er enginn réttur til bóta.

  • Ef tekjur eru á milli neðri og efri marka eru bætur skertar um 11% af upphæðinni sem fer yfir neðri mörkin.

Miðað er við samanlagðar skattskyldar tekjur allra á heimilinu (18 ára og eldri) fyrir skatt.

Tekjumörk frá 1. janúar 2025

Fjöldi heimilisfólks: 1

Árleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 5.935.476 krónur

  • Efri mörk: 11.476.421 krónur

Mánaðarleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 494.623 krónur

  • Efri mörk: 956.368 krónur

Fjöldi heimilisfólks: 2

Árleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 7.894.184 krónur

  • Efri mörk: 15.263.648 krónur

Mánaðarleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 657.849 krónur

  • Efri mörk: 1.271971 krónur

Fjöldi heimilisfólks: 3

Árleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 9.199.988 krónur

  • Efri mörk: 17.788.461 krónur

Mánaðarleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 766.666 krónur

  • Efri mörk: 1.482.372 krónur

Fjöldi heimilisfólks: 4

Árleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 9.971.600 krónur

  • Efri mörk: 19.280.391 krónur

Mánaðarleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 830.967 krónur

  • Efri mörk: 1.606.699 krónur

Fjöldi heimilisfólks: 5

Árleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 10.802.567 krónur

  • Efri mörk: 20.493.788 krónur

Mánaðarleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 900.214 krónur

  • Efri mörk: 1.740.591 krónur

Fjöldi heimilisfólks: 6 eða fleira

Árleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 11.633.533 krónur

  • Efri mörk: 22.493.788 krónur

Mánaðarleg tekjumörk:

  • Neðri mörk: 969.461 krónur

  • Efri mörk: 1.874.482 krónur

Neðri eignamörk: 8 milljónir
Efri eignamörk: 12,5 milljónir

Umsókn um húsnæðisbætur