Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur ætlaðar til þess að aðstoða fólk sem leigir íbúðarhúsnæði. Húsnæðið getur verið á almennum leigumarkaði, félagslegt leiguhúsnæði, á námsgörðum eða áfangaheimili. Ákveðin skilyrði þarf að uppfylla til að fá húsnæðisbætur. Húsnæðisbætur tóku við af eldra bótakerfi sem var kallað húsaleigubætur.
Upphæð húsnæðisbóta fer eftir:
fjölda fólks á heimilinu
tekjum
eignum
leiguverði
Hægt er að reikna áætlaða upphæð með reiknivél húsnæðisbóta.
Umsókn um húsnæðisbætur spurt og svarað
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun