Skútan - skipaskráningar og lögskráningarkerfi
Innifalið í aðgangi að lögskráningarkerfinu
Innifalið í aðgangi að lögskráningarkerfi sjómanna (Skútan) eru upplýsingum um lágmarksmönnun skipsins og réttindakröfur áhafnar. Hægt er að sjá hverjir eru lögskráðir á skipið, hafa undanþágur til starfa á skipinu, hverjir hafa verið lögskráðir á það sl. 3 mánuði, hvort áhafnatrygging sé í gildi fyrir skipið og fyrir hve marga og hverjir hafa heimild til að lögskrá á skipið. Með aðgangi getur útgerð/skipstjóri/eigandi lögskráð og afskráð sjálf áhafnir skipa sinna hvenær sólarhringsins sem er. Auk þess hefur útgerð/skipstjóri aðgang að öllum tækniupplýsingum um skipið, gildistíma haffærisskírteinis og annarra skipsskírteina auk allra skoðunarskýrslna á skipinu, gildistíma þeirra og dæmingar einstakra skoðunaratriða (Heildarlisti skoðana).
Þjónustuaðili
Samgöngustofa