Skútan - skipaskráningar og lögskráningarkerfi
Árgjald vegna aðgangs að lögskráningarkerfi
Árgjald vegna aðgangs að lögskráningarkerfi sjómanna (Skútan) er kr. 26.487 vegna ársins 2024 og hefur krafa verið send í heimabanka útgerða og einstaklinga sem eru með skráð skip á skipaskrá og er eindagi þess 5. febrúar 2025. Gjaldið er innheimt á grundvelli gjaldskrár Samgöngustofu og 31. gr. laga um áhafnir skipa nr. 82/2022 og er ætlað að standa straum af rekstrarkostnaði vegna viðhalds og vistunar lögskráningarkerfisins og launa starfsmanna vegna þess. Til viðbótar við árgjaldið þarf að greiða kr. 4.744 fyrir hvern notanda kerfisins sem hefur heimild til að lögskrá á skip og verða reikningar sendir út í lok febrúar með eindaga 5. apríl 2025 vegna notenda kerfisins. Aðilar eru hvattir til að fara yfir þau nöfn sem hafa aðgang til lögskráningar á skip og láta Samgöngustofu vita fyrir 1. mars nk. ef gera þarf breytingar þar á.
Þjónustuaðili
Samgöngustofa