Námskeið og verkleg próf
Vinnueftirlitið heldur ýmis námskeið tengd vinnuvernd, vinnuvélum, efnum og efnahættum. Flest námskeiðin eru stafræn. Próftaka, ef við á, fer fram á starfsstöðvum Vinnueftirlitsins eða hjá samstarfsaðilum. Bóka þarf próftíma fyrir fram.
Þátttakendur á námskeiðum fá tölvupóst með leiðbeiningum.
Ef tölvupóstur glatast eða aðgangur virkar ekki er hægt að hafa samband með tölvupósti eða í síma 550 4600.
Námskeiðsflokkar
Kennsla
Flest námskeið eru stafræn og hægt að taka árið um kring.
Verkleg próf
Þegar bóklegum námskeiðum er lokið þarf í sumum tilvikum að taka verkleg próf á vegum Vinnueftirlitsins til að öðlast ákveðin réttindi.