Lærðu að bera kennsl á vísbendingar um mansal
3. maí 2022
Vinnueftirlitið vekur athygli á upplýsingabæklingi sem ætlað er að hjálpa fólki að bera kennsl á mansal sem dómsmálaráðuneytið hefur gefið út á þremur tungumálum.
Í bæklingnum er farið yfir vísbendingar um mansal sem geta birst í hegðun, viðmóti og ásýnd en ekki síður í vinnu- eða lífskjörum viðkomandi. Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu dómsmálaráðuneytisins.
Hlutverk Vinnueftirlitsins er að tryggja að allir komi heilir heim úr vinnu. Ef grunur er um að aðbúnaður starfsfólks sé ekki eins og vera skal eða heilsu þess og öryggi ógnað, hvetur Vinnueftirlitið til þess að upplýsingum þar um verði komið á framfæri við stofnunina, svo sem með því að senda inn ábendingu.