Málstofa um forvarnir gegn stoðkerfisvanda á vinnustöðum
26. nóvember 2021
Vinnueftirlitið sendir út beint streymi frá málstofu um forvarnir gegn stoðkerfisvanda á vinnustöðum fimmtudaginn 2. desember næstkomandi frá klukkan 9.00 til 10.00.
Komið er að annarri málstofu af fjórum í beinu streymi á vegum Vinnueftirlitsins.
Málstofan verður haldin fimmtudag 2. desember nk. kl. 9-10 og er efni hennar Forvarnir gegn stoðkerfisvanda á vinnustöðum.
Á málstofunni verða tvö erindi:
Þórunn Sveinsdóttir
sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu mun fjalla um forvarnarstarf á vinnustöðum og mikilvægi þess að nálgast stoðkerfisvanda heildstætt með því að ráðast að rótum hans. Hún mun jafnframt ræða helstu áskoranirnar sem blasa við í framtíðinni ef ná á stjórn á stoðkerfisvanda starfandi fólks.
Gunnhildur Gísladóttir
sérfræðingur hjá Vinnueftirlitinu mun kynna hagnýtan leiðarvísi að vellíðan í starfi og hvernig má takast á við og hafa stjórn á stoðkerfisvanda á vinnustöðum. Þar mun hún m.a. fara yfir fimm skrefa ferli sem getur reynst gagnlegt stjórnendum og starfsfólki í forvarnarskyni.
Ekki er nauðsynlegt að skrá sig á málstofurnar og allir velkomnir. Látið upplýsingar um málstofuna endilega berast til þeirra sem eru í kringum ykkur.
Tenging á streymið verður hér á heimasíðu Vinnueftirlitsins og á fésbókinni. Þá er minnt á tvær síðustu málstofurnar:
14. janúar – Rakaskemmdir og inniloft á vinnustöðum
20. janúar – Forvarnir í mannvirkjagerð á undirbúnings- og hönnunarstigi