Heilsueflandi forysta og vellíðan í starfi
3. mars 2022
Vinnueftirlitið, VIRK og embætti landlæknis bjóða upp á morgunfund um heilsueflandi vinnustaði í streymi miðvikudaginn 16. mars frá klukkan 8.30 – 10.
Heilsueflandi forysta og vellíðan í starfi er yfirskrift fundarins. Fyrirlesari er Dr. Sigrún Gunnarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og prófessor í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og formaður Þekkingarseturs um þjónandi forystu. Streymið af fundinum verður aðgengilegt á vefsíðum stofnanna þriggja.
Mikilvægt er að leiðtogar þekki leiðir til að efla heilsu á vinnustað og nýti tækifæri til að draga úr vanlíðan í starfi. Rannsóknir sýna að samskipti og áherslur leiðtoga hafa afgerandi áhrif á vellíðan starfsfólks. Sannreynd þekking um heilsueflandi forystu byggir á rannsóknum frumkvöðla á sviðinu og sýnir að sálfélagslegir þættir á vinnustað tengjast starfsánægju, vellíðan og geta virkað sem forvarnir kulnunar í starfi.
Sjálfræði í starfi og áhrif á eigin störf geta verndað starfsmann gegn neikvæðum áhrifum álags og sama á við um félagslegan stuðning. Í erindinu verður kynnt tillaga að líkani sem byggir á sannreyndri þekkingu um heilsueflandi forystu með heildrænni nálgun sem eflir heilbrigt starfsumhverfi og vellíðan þar sem áhersla er á:
Sjálfræði og gagnkvæman stuðning
Persónulegan styrk og innri starfshvöt
Sameiginlegan tilgang og skýra ábyrgðarskyldu
Morgunfundurinn er sá níundi í fundaröðinni um heilsueflingu á vinnustöðum og er hluti af samstarfi VIRK, embættis landlæknis og Vinnueftirlitsins um heilsueflingu og forvarnir á vinnustöðum.
Markmið samstarfsins er að stuðla að betri heilsu og vellíðan vinnandi fólks á vinnustöðum, fyrirbyggja kulnun og minnka brottfall af vinnumarkaði.