Fjar- og netnámskeið um vinnuvélar, vinnuvernd, efni og efnahættur
25. október 2022
Vinnueftirlitið býður upp á fjölbreytt námskeið um vinnuvélar, vinnuvernd, efni og efnahættur. Flest námskeiðin eru kennd í gegnum Teams fjarfundakerfið en einnig eru komin á dagskrá nokkur netnámskeið. Á næstunni eru eftirfarandi námskeið í boði.
Vinnuvélanámskeið
Frumnámskeið veitir bókleg réttindi á minni vinnuvélar eins og dráttarvélar og lyftara og er undanfari að verklegri þjálfun og próftöku
Vinnuverndarnámskeið
Netnámskeið fyrir öryggistrúnaðarmenn og öryggisverði
Námskeiðið er ætlað öryggistrúnaðarmönnum og -vörðum á vinnustöðum. Tilgangurinn er að auka þekkingu þeirra á vinnuverndarmálum með áherslu á þróun öryggismenningar og forvarnir gegn helstu áhættuþáttum í vinnuumhverfi. Námskeiðið er einnig opið öðrum sem hafa áhuga á vinnuverndarmálum. Námskeiðið nemur um tólf klst. en er aðgengilegt þátttakendum í sjö daga þannig að hægt er að haga tímanum að vild innan þess ramma.
Vinna í lokuðu rými (netnámskeið)
Námskeiðið nemur nemur um þremur klukkustundum. en er opið þátttakendum í þrjá daga. Megináhersla námskeiðsins lýtur að vinnu í lokuðu rými, þeim hættum sem geta skapast og mikilvægi réttra forvarna og viðbragðsáætlana.
Námskeið um efni- og efnahættur
Asbest (netnámskeið)
Námskeiðið nemur um þremur klukkustundum en er opið þáttakendum í þrjá daga. Námskeiðið veitir réttindi til vinnu við asbestverk er valda lítilli mengun.
ADR-námskeið eru fyrir ökumenn sem flytja hættulegan farm.
Grunnnámskeið veitir réttindi til flutnings á stykkjavöru. Með viðbótarnámskeiðum fást réttindi til flutnings á efnum í tanki, á sprengifimum efnum og geislavirkum efnum. ADR réttindi gilda í 5 ár en má framlengja ef rétthafi hefur setið endurmenntunarnámskeið áður en þau renna út.