Fara beint í efnið
Vinnueftirlitið Forsíða
Vinnueftirlitið Forsíða

Vinnueftirlitið

ADR námskeið: Flutningur hættulegra efna

Efnisyfirlit

Ávinningur

Grunnnámskeið veitir ökumönnum réttindi til flutnings á stykkjavöru. Með viðbótarnámskeiðum er hægt að öðlast réttindi til flutnings á efnum í tanki, til flutnings á sprengifimum efnum og til flutnings á geislavirkum efnum.

Tegundir námskeiða

Þriggja daga grunnnámskeið

Þetta námskeið verða allir að taka. Námskeiðið veitir réttindi til að flytja hættulegan farm sem stykkjavöru fyrir utan geislavirk efni og sprengifim efni. Það er samtals 18 tímar.

Tveggja daga framhaldsnámskeið

- til að öðlast réttindi til að flytja hættulegan farm í tönkum.

Eins dags framhaldsnámskeið

- sem veitir réttindi til að flytja geislavirkan farm.

Eins dags framhaldsnámskeið

- sem veitir réttindi til að flytja sprengifiman farm.

Réttindin gilda í fimm ár en það má framlengja ef viðkomandi hefur setið endurmenntunarnámskeið áður en þau renna út.

ADR námskeið fyrir ökumenn sem flytja hættulegan farm á vegum

Grunnnámskeið, 3 dagar (18 tímar), veitir ökumönnum réttindi til flutnings á stykkjavöru, þó ekki sprengifimum eða geislavirkum efnum.

Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og lýkur með prófi.

Eftir grunnnámskeið, sem allir verða að sitja, er val um þrjú framhaldsnámskeið eftir því hvaða réttinda viðkomandi vill afla sér til viðbótar:

  • Viðbótarnámskeið við grunnnámskeið, 2 dagar (12 tímar), veitir réttindi til flutnings á efnum í tanki.

  • Viðbótarnámskeið við grunnnámskeið, 1 dagur (8 tímar), veitir réttindi til flutnings á sprengifimum efnum.

  • Viðbótarnámskeið við grunnnámskeið, 1 dagur (8 tímar), veitir réttindi til flutnings á geislavirkum efnum.

Innifalið í námskeiðinu er verkleg kennsla í skyndihjálp og notkun slökkvitækja.

ADR endurmenntunarnámskeið fyrir ökumenn sem flytja hættulegan farm

Gildistími ADR-skírteinis ökumanns sem annast flutning á hættulegum farmi er fimm ár.

Heimilt er að framlengja gildistímann um fimm ár í senn hafi handhafi ADR-skírteinisins á síðustu tólf mánuðum áður en gildistíminn rann út lokið endurmenntunarnámskeiði og staðist próf í lok þess.

Endurmenntunarnámskeið fyrir stykkjavöruflutning (grunnur) og flutning í tönkum eru netnámskeið og eru aðgengileg í fræðslukerfi Vinnueftirlitsins. Námskeiðin eru opin þátttakendum í 8 vikur frá skráningu en það tekur um 3 – 5 klukkustundir að fara í gegnum efnið.

Endurmenntunarnámskeið fyrir flutning á sprengifimum og/eða geislavirkum farmi eru haldin í fjarkennslu í Teams fjarfundakerfinu.

Námskeiðunum lýkur með prófi sem tekin eru á starfsstöðvum Vinnueftirlitsins.

Til að að endurnýja réttindi fyrir flutning á hættulegum farmi í tönkum og/eða flutning á sprengifimum farmi og/eða flutning á geislavirkum farmi verður viðkomandi að hafa gild réttindi fyrir stykkjavöruflutninga (grunnnámskeið).

Lesa meira:

Reglugerð um flutning á hættulegum farmi á landi

Stafræn ADR-skírteini

Stafræn skírteini með ADR-réttindum eru fyrir alla sem hafa réttindi til að flytja hættulegan farm og eiga snjallsíma. Skírteinin sanna fyrir lögreglu að stjórnandi ökutækis sé með gild ADR-réttindi en á þeim koma fram sömu upplýsingar og á hefðbundnum ADR-skírteinum.

Stafrænu skírteinin gilda aðeins á Íslandi. Þau eru fyrir notendur Android og iOS-síma en eingöngu er hægt að setja þau upp á einu símtæki í einu. Ef þau er sett upp í öðrum síma afvirkjast þau í tækinu sem þau voru í áður.

Sækja stafrænt ADR-skírteini


Næstu námskeið