Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Héraðsskjalasöfn

Héraðsskjalasöfn eru sjálfstæð opinber skjalasöfn sem lúta faglegu eftirliti Þjóðskjalasafns samkvæmt lögum um opinber skjalasöfn. Rekstur héraðsskjalasafns er á ábyrgð þess sveitarfélags (eða sveitarfélaga) sem að því stendur og safnið starfar innan marka þess.

Hlutverk Þjóðskjalasafns er meðal annars að gefa út leyfi til stofnunar og reksturs héraðsskjalasafna að fengnu samþykki ráðherra og að hafa eftirlit með rekstri héraðsskjalasafna. Þá hefur Þjóðskjalasafn það hlutverk að úthluta árlegum rekstrar- og verkefnastyrkjum til héraðsskjalasafna.

Ýmislegt samstarf á sér stað milli opinberra skjalasafna og funda þau árlega um sameiginleg málefni.

Héraðsskjalasöfn á Íslandi:

  • Borgarskjalasafn Reykjavíkur

  • Héraðsskjalasafn Akraness

  • Héraðsskjalasafn Austfirðinga

  • Héraðsskjalasafn Austur-Húnavatnssýslu

  • Héraðsskjalasafn Austur-Skaftafellssýslu

  • Héraðsskjalasafn Árnesinga

  • Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar

  • Héraðsskjalasafn Dalasýslu

  • Héraðsskjalasafn Fjallabyggðar

  • Héraðsskjalasafn Kópavogs

  • Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar

  • Héraðsskjalasafn Neskaupstaðar

  • Héraðsskjalasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga

  • Héraðsskjalasafn Svarfdæla

  • Héraðsskjalasafn Skagfirðinga

  • Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja

  • Héraðsskjalasafn Vestur-Húnavatnssýslu

  • Héraðsskjalasafn Þingeyinga

  • Héraðsskjalasafnið á Akureyri

  • Héraðsskjalasafnið Ísafirði

Upplýsingar og eyðublöð vegna verkefnastyrkja til héraðsskjalasafna:

Upplýsingar um tilfærslu verkefna og safnkosts Borgarskjalasafns Reykjavíkur og Héraðsskjalasafns Kópavogs til Þjóðskjalasafns má sjá hér:

Tilfærsla á verkefnum og safnkosti Borgarskjalasafns Reykjavíkur til Þjóðskjalasafns Íslands

Tilfærsla á verkefnum og safnkosti Héraðsskjalasafns Kópavogs til Þjóðskjalasafns Íslands

Skýrslur um starfsemi héraðsskjalasafna: