Staða þinglýsinga
Þinglýsing skjala föstudag 22. nóvember 2024
Móttaka, þinglýsing, afgreiðsla, aflýsing og afhending þinglýstra skjala fara fram í skrifstofu embættisins að Hlíðasmára 1, Kópavogi á 1. hæð, mánudaga til fimmtudaga frá kl. 8:30 til kl. 15:00 og föstudaga frá kl. 8:30 til 14:00.
Eftirfarandi skjöl hafa verið könnuð/þinglýst:
Almenn skjöl
Skjöl sem voru móttekin til og með 15. nóvember hafa verið yfirfarin og má vitja þeirra. 3. desember n.k. verður reynt að hafa almenn skjöl sem koma inn til þinglýsingar í dag tilbúin.
Viðskiptavinir eru þó hvattir til að kynna sér stöðuna á heimasíðunni áður en þeir vitja skjalanna. (með almennum skjölum er átt við önnur skjöl en þau sem getið er sérstaklega hér fyrir neðan)
Húsaleigusamningar:
Skjöl sem komu inn 15. nóvember eru yfirfarin og má vitja þeirra.
Eignaskiptayfirlýsingar og lóðamarkabreytingar:
Eignaskiptayfirlýsingar sem komu inn til þinglýsingar 15. nóvember eða fyrr hafa nú verið yfirfarnar, hafi þær verið afgreiddar af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Sé ekki búið að þinglýsa eignaskiptayfirlýsingu getur verið að hún sé haldin annmörkum og er þá best að hafa samband við þinglýsingar til að fá nánari upplýsingar.
Eldri eignaskiptayfirlýsingum hefur verið þinglýst hafi þær uppfyllt lagaskilyrði.
Lóðarmarkabreytingar sem komu inn til þinglýsingar 15. nóvember s.l. eða fyrr hafa verið yfirfarnar. Sé ekki búið að þinglýsa skjölunum getur verið að þau sé haldin annmörkum og er þá best að hafa samband við þinglýsingar til að fá nánari upplýsingar.
Aflýsingar:
Aflýst hefur verið skjölum sem bárust 21. nóvember s.l.