Staða fjölskyldumála
hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu
Biðtími ágreiningsmála hjá fjölskyldusviði Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu er sem að
neðan greinir.
Upplýsingarnar hér að neðan eiga við um erindi þar sem annar aðilinn leggur inn kröfu og óskar umfjöllunar, úrskurðar eða eftir atvikum sáttameðferðar.
Ekki er biðtími á afgreiðslu mála þar sem er samkomulag, t.d. vegna skilnaða,
sambúðarslita, staðfestinga á samningum foreldra um meðlag, lögheimili, forsjá
o.fl.
Dagsektamál
Beiðnir um álagningu dagsekta eru teknar til umfjöllunar þegar þær berast.
Umgengni – Forsjá – Lögheimili
Erindi sem bárust fyrir 20. júní 2024 hefur verið úthlutað til löglærðs fulltrúa.
Meðlag – Sérstakt framlag - Menntunarframlag
Erindi sem bárust fyrir 23. júní 2024 hefur verið úthlutað til löglærðs fulltrúa.
Mál sem vísað hefur verið í sáttameðferð
Mál sem vísað var í sáttameðferð fyrir 2. ágúst 2024 hafa verið tekin til umfjöllunar hjá sáttamönnum.
Ættleiðingarmál – Frá Íslenskri ættleiðingu
Erindi frá Íslenskri ættleiðingu eru tekin til umfjöllunar þegar þau berast.
Ættleiðingarmál - Önnur
Erindi sem bárust fyrir 7. ágúst 2024 hafa verið tekin til umfjöllunar.