Ísland.is með 7 tilnefningar SVEF 2025
6. mars 2025
Verkefni á vegum Stafræns Íslands fá sjö tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna 2025.


Þar á meðal er Ísland.is appið tilnefnt í flokknum app ársins og Ísland.is í tveimur flokkum og Stafrænt pósthólf í tveimur flokkunum.
Aðsókn að bæði Ísland.is vefnum og Ísland.is appinu hefur stóraukist. Árið 2024 fékk Ísland.is hátt í 28 milljón heimsóknir og þeim sem flytja efni sitt á vefinn fjölgar stöðugt. 52 stofnanir og opinber verkefni eru nú hluti af Ísland.is samfélaginu. Þá hafa um 200 þúsund sótt Ísland.is appið.
Ríkisstjórnin hefur sett sér það markmið að Ísland verði í fremstu röð í opinberri, stafrænni þjónustu og sýna kannanir að vinnunni miðar vel áfram. Stafræn þjónusta er þegar farin að einfalda líf fólks, spara tíma á sama tíma og þjónustan batnar.
Tilnefningarnar eru:
Ísland.is appið í flokknum App ársins
Ísland.is í flokknum Opinber vefur ársins
Ísland.is í flokknum Efnis- og fréttaveita ársins
Stafrænt pósthólf í flokknum Opinber vefur ársins
Stafrænt pósthólf í flokknum Tækninýting ársins
Fyrir Grindavík sem Samfélagsvefur ársins
Stafræn umsókn um fæðingarorlof sem Stafæn lausn ársins
Sjötíu vefir, eða stafrænar lausnir, í 14 flokkum eru tilnefnd í ár. Fjöldi flokkanna endurspeglar breidd þeirra verkefna sem vef- og tækniiðnaðurinn á Íslandi kemur að.Verðlaunin verða veitt í 24. skipti föstudaginn 21. mars í Grósku en þar verða þau verkefni og einstaklingar sem skarað hafa fram úr á liðnu ári verðlaunuð.
Samtök vefiðnaðarins (SVEF) eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi en það er SVEF sem stendur fyrir verðlaununum.
Nánari upplýsingar um SVEF og íslensku vefverðlaunin er að finna á vefsíðu SVEF.