Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Ert þú gagnastjóri Íslands?

6. febrúar 2025

Sérð þú tækifæri í að nýta gögn til að bæta stafræna þjónustu, taka upplýstari ákvarðanir og stuðla að því að Ísland verði leiðandi í gagnadrifinni nýsköpun á alþjóðavísu?

NM-025294 Island.is Gagnastjóri some 1080x1920

Fjármála- og efnahagsráðuneytið fer með málefni upplýsingatækni, stafrænnar umbreytingar og gagna íslenska ríkisins og leitar nú að öflugum og metnaðarfullum gagnastjóra. Starfið er hjá Stafrænu Íslandi, einingu innan ráðuneytisins, sem vinnur með opinberum aðilum að því að efla stafræna þjónustu við almenning og einfalda líf fólks. Leitað er að drífandi aðila í teymið sem á auðvelt með að fá fólk í lið með sér.Ríkisaðilar búa yfir fjölbreyttum gögnum og mörg tækifæri liggja í betri hagnýtingu gagnanna. Hlutverk gagnastjóra er að leiða á hagkvæman máta þá vegferð að hagnýta gögn ríkisaðila með markvissum og stefnumarkandi hætti og stuðla að bættri og virðisaukandi þjónustu, gagnadrifinni ákvarðanatöku og því að leggja grunn að hagnýtingu gervigreindar.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Framfylgja gagnastefnu Íslands og móta heildstæða aðgerðaráætlun í takt við hana

  • Þétt og leiðbeinandi samstarf við ríkisaðila um aukna hagnýtingu og stjórnskipulag gagna

  • Stuðla að nýsköpun ríkisaðila með hagnýtingu gagna og notkun nýjustu tæknilausna

  • Stefnumótun og hönnun gagnasamskiptalags ríkisins

  • Móta og þróa staðlaðan gagnaarkitektúr og viðmið um gagnagæði og gagnainnviði ríkisins

  • Kortleggja og miðla yfirsýn yfir gögn, gagnageymslur og gagnamódel og stuðla að samræmi og gagnvirkni milli mismunandi kerfa hins opinbera

  • Leiða umbætur í þeim tilgangi að hámarka virði og nýtingu gagna fyrir hagkvæman rekstur og bætta þjónustu

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. tölvunarfræði, gagnavísindi, verkfræði

  • Framsýni og frumkvæði í gagnastjórnun m.t.t. nýsköpunar og nýtingu gervigreindar

  • Reynsla af þróun og innleiðingu stefnu og staðla um gagnastjórnun kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og reynsla af því að leiða ólíka aðila saman til árangurs

  • Færni í stjórnun gagnagæða og lýsigagna til að tryggja áreiðanleika

  • Þekking á hönnun á öruggum og samræmdum gagnaarkitektúr

  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.Um fullt starf er að ræða. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. gildandi reglur um auglýsingar lausra starfa.Nánari upplýsingar veita Birna Íris Jónsdóttir (birna.jonsdottir@fjr.is ) og Ragnheiður Valdimarsdóttir í fjármála-og efnahagsráðuneytinu (ragnheidur.valdimarsdottir@fjr.is) og Thelma Kristín Kvaran hjá Intellecta, (thelma@intellecta.is).

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 17.02.2025

Nánari upplýsingar veitir

Birna Íris Jónsdóttir, birna.jonsdottir@fjr.is

Fylgstu með því nýjasta

Skráðu þig á póstlista Stafræns Íslands og fylgstu með því nýjasta í stafrænni opinberri þjónustu.