Fara beint í efnið
Sjónstöðin Forsíða
Sjónstöðin Forsíða

Sjónstöðin

Útskrift 8 umferlisráðgjafa

20. janúar 2025

Þann 14. janúar síðastliðinn útskrifuðust 8 umferlisráðgjafar. Þetta er stór áfangi í sögu Sjónstöðvarinnar.

Umferlisráðgjafar

Þann 14. janúar útskrifuðust 8 umferlisráðgjafar sem hafa verið í námi á vegum Háskólans í Danmörku (UC syn) í samvinnu við IBOS.

Þetta er stór áfangi í sögu Sjónstöðvar þar sem þetta er í fyrsta sinn sem nám af þessu tagi fer fram á Íslandi. Sjónstöðin hélt utan um skipulag námsins sem var styrkt af sjóðnum Stuðningur til Sjálfstæðis sem er í umsjón Blindrafélagsins og Starfsþróunarsetri BHM.

Kennslan fór fram á Sjónstöðinni og sáu danskir kennarar um kennsluna. Nemarnir sinntu auk þess verklegu námi undir handleiðslu umferlisráðgjafa Sjónstöðvar.

Sjónstöðin fagnar þessum áfanga enda er áttun og umferli mjög mikilvægur þáttur í starfi með blindum og sjónskertum.

Markmið með umferli er að stuðla að sjálfstæði einstaklings og hvetja til virkni. Umferli snýst um að átta sig á umhverfi sínu, læra aðferðir og leiðir til að komast frá einum stað til annars og nýtingu hjálpartækja í umferli.

Hvíti stafurinn er og hefur alltaf verið eitt mikilvægasta hjálpartæki í áttun og umferli. Á síðustu árum hefur orðið bylting í ýmsum smáforritum og tæknibúnaði sem eykur sjálfstæði og frelsi fólks til að fara um á sjálfstæðan hátt. Auk þess hafa þrívíddarkort rutt sér til rúms.

Sjónstöðin óskar nýjum umferlisráðgjöfum til hamingju með daginn og væntir góðs að framlagi þeirra á næstu árum.