Ráðgjöf til þjónustuaðila
Sjónstöðin veitir fræðslu og ráðgjöf til þeirra sem koma að þjónustu við sjónskerta, blinda og einstaklinga með samhæfða sjón- og heyrnaskerðingu. Ráðgjafar frá Sjónstöð:
heimsækja vinnustaði, skóla, stofnanir og heimili og lagt mat á aðstæður og aðgengi
koma með tillögur að úrbótum miðað við þarfir hvers og eins
Menntastofnanir
Ráðgjafi Sjónstöðvar leggur mat á stöðu nemandans með tilliti til aðgengis að námi og námsefni.
Atvinnurekendur
Sjónstöðin veitir ráðgjöf til vinnustaða, búsetukjarna, félagsþjónustu og annara sem koma að þjónustu við sjónskerta og blinda einstaklinga.
Umönnunaraðilar
Sjónstöðin veitir ráðgjöf til aðstandenda og starfsfólks félagsþjónustu og stofnana eins og dvalarheimila og hjúkrunarheimila.
Tímapantanir
Tímapantanir fyrir ráðgjöf frá Sjónstöð eða samband við ráðgjafa fer fram með því að hringja í síma 545 5800.