Sjónstöðin tekur þátt í þjónustukönnun ríkisstofnana
16. desember 2024
Sjónstöðin tekur um þessar mundir þátt í þjónustukönnun ríkisstofnana sem hefur þann tilgang að kanna viðhorf notenda til þjónustu stofnunarinnar og meta ánægju með opinbera þjónustu.
Sjónstöðin tekur um þessar mundir þátt í þjónustukönnun ríkisstofnana sem hefur þann tilgang að kanna viðhorf notenda til þjónustu stofnunarinnar og meta ánægju með opinbera þjónustu.
Framkvæmdin er þannig að þeir sem hafa nýtt sér þjónustu stofnunarinnar fá sendan tölvupóst með hlekk á könnunina. Það tekur aðeins um 2 mínútur að svara könnuninni sem er nafnlaus og ekki hægt að rekja svör til einstakra þátttakenda.
Hægt er að velja um að sjá spurningarnar á íslensku, ensku, pólsku eða íslensku táknmáli.
Við hvetjum alla notendur þjónustu Sjónstöðvarinnar að taka þátt. Það er Sjónstöðinni mikils virði að fá álit notenda / aðstandenda sem geta auðveldað stofnuninni að skipuleggja þjónustuna þannig að hún reynist sem best.