Laust starf þjónustufulltrúa hjá Sjónstöðinni
28. nóvember 2024
Laust er til umsóknar 100% starf þjónustufulltrúa hjá Sjónstöðinni - Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
Ef þú býrð yfir jákvæðni og þjónustulund erum við að leita af þér!
Laust er til umsóknar 100% starf þjónustufulltrúa hjá Sjónstöðinni - Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
Sjónstöðin sinnir ráðgjöf, fræðslu og stuðningi með það að markmið að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með móttöku stofununarinnar
Almenn símsvörun og upplýsingagjöf
Frágangur skjala og skjalavistun
Umsjón með endurgreiðslum gleraugna
Hæfniskröfur
Góð tölvukunnátta
Góð færni í ritaðri og munnlegri íslensku og ensku
Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
Skipulagshæfileikar, sjálfstæði, sveigjanleiki og frumkvæði í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Sjónstöðin hvetur jafnt karla sem konur til að sækja um þessa stöðu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur.
Sjónstöðin er þjónustu- og þekkingarmiðstöð sem er ábyrg og framsækin stofnun sem veitir framúrskarandi heildstæða þjónustu með jafnrétti í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.12.2024
Nánari upplýsingar veitir
Elfa Svanhildur Hermannsdóttir, elfa.s.hermannsdottir@sjonstodin.is
Sími: 545-5800