Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Dómstólar Forsíða
Dómstólar Forsíða

Dómstólar

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara fjallar um hæfni umsækjenda um embætti embætti hæstaréttardómara, landsréttardómara og héraðsdómara sem og embætti dómenda við Endurupptökudóm.

Skipun í dómaraembætti

Óheimilt er að skipa í dómaraembætti einstakling sem dómnefnd hefur ekki talið hæfastan meðal umsækjenda.

Undantekning er ef Alþingi samþykkir tillögu ráðherra um heimild til að skipa í embættið annan nafngreindan umsækjanda sem fullnægir að mati dómnefndar öllum skilyrðum til að hljóta skipun í embættið.

Umsögn um umsækjendur

Dómnefndin lætur ráðherra í té skriflega og rökstudda umsögn um umsækjendur um embætti dómara þar sem tekin skal afstaða til þess hvaða umsækjandi sé hæfastur til að hljóta embættið.

Sjá umsagnir nefndarinnar á vef stjórnarráðs Íslands

Skipun nefndarinnar

Nefndin er skipuð af ráðherra og samanstendur af fimm aðalmönnum og jafnmörgum varamönnum.

Hæstiréttur tilnefnir formann nefndarinnar. Annar nefndarmaður er tilnefndur af Landsrétti. Þá tilnefnir dómstólasýslan þriðja nefndarmannin sem skal ekki vera starfandi dómari. Lögmannafélag Íslands tilnefndir þann fjórða og loks er sá fimmti kosinn af Alþingi.

Skipunartími

Skipunartími í nefndina er fimm ár, þó þannig að hvert ár renni út skipunartími eins nefndarmanns.

Dómnefnd skipa:

  • Ása Ólafsdóttir hæstaréttardómari er formaður nefndarinner, tilnefnd af Hæstarétti.

  • Kristín Benediktsdóttir dósent, tilnefnd af Landsrétti.

  • Helga Melkorka Óttarsdóttir, tilnefnd af Alþingi.

  • Þorgeir Örlygsson fyrrverandi hæstaréttardómari, tilnefndur af dómstólasýslunni.

  • Reimar Snæfells Pétursson lögmaður, tilnefndur af Lögmannafélagi Íslands.

Varamenn:

  • Sigurður Tómas Magnússon hæstaréttardómari.

  • Jóhannes Sigurðsson landsréttardómari.

  • Sigríður Þorgeirsdóttir ráðgjafi/lögfræðingur.

  • Ragnheiður Thorlacius fyrrverandi héraðsdómari.

  • Hjördís Halldórsdóttir lögmaður.

Lesa meira