Fara beint í efnið
Dómstólar Forsíða
Dómstólar Forsíða

Dómstólar

Rafræn sending gagna

Héraðsdómstólar

Almenn innsending gagna í öllum málategundum er í gegnum vefgátt dómstóla.

Vefgátt dómstóla

Vefgáttin er gagnamiðlunarsvæði sem er tengt við upplýsingakerfi dómstóla og dómstólasýslu. Allar fyrirspurnir berast til Landsréttar, héraðsdómstóla eða eftir atvikum til dómstólasýslunnar.

Leiðbeiningar

Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar um móttöku gagna sem send eru frá dómstól og innsendingu gagna til dómstóls.

Rannsóknarmál

Almenn innsending gagna er í gegnum réttarvörslugáttina.

Réttarvörslugátt

Notaðu rafræn skilríki til þess að skrá þig inn. Passaðu upp á að það sé kveikt á símanum eða hann sé ólæstur.

Landsréttur

Almenn innsending gagna í öllum málategundum er í gegnum vefgátt dómstóla.

  • Áfrýjuð einkamál, áfrýjunarstefna og staðfest endurrit héraðsdóms.

  • Ágrip, greinargerðir og fylgigögn.

Vefgátt dómstóla

Vefgáttin er gagnamiðlunarsvæði sem er tengt við upplýsingakerfi dómstóla og dómstólasýslu. Allar fyrirspurnir berast til Landsréttar, héraðsdómstóla eða eftir atvikum til dómstólasýslunnar.

Um rafræn skil á gögnum

Skjöl og sýnileg sönnunargögn sem leggja skal fram vegna reksturs máls teljast afhent dómstól berist þau honum sannanlega rafrænt innan tilskilins frest. Skilyrði er að senda dómstól jafnframt strax í pósti tilskilinn fjölda eintaka skjalanna og annarra sýnilegra sönnunargagna.

Málsaðila er skylt að afhenda gagnaðila samtímis með sama hætti skjöl og sýnileg sönnunargögn sem þannig eru afhent dómstól.

Ef upp koma vandamál við notkun ætti að hafa samband við viðkomandi héraðsdóm. Þetta er samkvæmt:

Hæstiréttur

Beiðnir um áfrýjunarleyfi og umsagnir gagnaðila.

Þjónustugátt

Fyrir áfrýjunarleyfisbréf og umsagnir

Skjalagátt

Almenn innsending gagna, þ. á m. rafræn ágrip, kærumálsgögn, greinargerðir og önnur gögn sem ekki er unnt að senda í þjónustugátt