Stöndum vörð um öll börn
Barna- og fjölskyldustofa sinnir verkefnum í þágu velferðar barna um allt land. Hlutverk BOFS er að veita og styðja við þjónustu í samræmi við bestu þekkingu og reynslu á hverjum tíma.
Öllum börnum á að líða vel
Öll börn eiga rétt á að fá þá þjónustu sem þau þurfa, þegar á þarf að halda. Þessi réttur er kallaður samþætting þjónustu í þágu farsældar barna.
Barnavernd
Barna- og fjölskyldustofa styður við þjónustu í þágu barna með því að vinna að samhæfingu og eflingu barnaverndarstarfs um allt land.
Barnahús
Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðisofbeldi, líkamlegu ofbeldi eða heimilisofbeldi.
Fóstur
BOFS veitir upplýsingar um hlutverk fósturforeldra og réttindi fósturbarna auk ráðgjafar vegna fósturráðstafana fyrir barnaverndarþjónustur.
Ráðgjöf
Sérfræðingar BOFS veita margvíslega ráðgjöf og upplýsingar fyrir starfsfólk sem vinnur með börnum og fjölskyldum.
Fræðslufundur um inngildandi samfélag (Upptaka)
Þriðjudaginn 21. janúar stóð Barna- og fjölskyldustofa ásamt Miðstöð menntunar og skólaþjónustu fyrir fræðslufundi á Teams undir yfirskriftinni: „Hvernig stuðlum við að inngildandi samfélagi fyrir börn og fjölskyldur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn?“
Farsæld til framtíðar - málþing um fyrstu þrjú ár innleiðingar farsældarlaganna (hlekkur á streymið)
Næstkomandi mánudag 27. janúar kl. 09:45-16:00 stendur Barna- og fjölskyldustofa í samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneytið fyrir málþinginu, Farsæld til framtíðar - fyrstu þrjú ár innleiðingar farsældarlaganna. Hlekkur á streymið er hér fyrir neðan.