Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Barna- og fjölskyldustofa Forsíða
Barna- og fjölskyldustofa Forsíða

Barna- og fjölskyldustofa

Tilkynningum fjölgaði á fyrstu níu mánuðum ársins 2024, mest vegna áhættuhegðunar barna

10. apríl 2025

Tilkynningar til barnaverndarþjónusta voru 11,8% fleiri á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 miðað við sama tímabil ársins á undan. Tilkynningum fjölgaði í öllum landshlutum á tímabilinu en mest í Reykjavík eða um 13.1%.

Tölfræði

Líkt og fyrri ár voru flestar tilkynningar á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 vegna vanrækslu, eða 42,2% allra tilkynninga. Hlutfall tilkynninga vegna áhættuhegðunar barna var 32,8% á fyrstu níu mánuðum ársins 2024. Hlutfall tilkynninga vegna ofbeldis á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 var 24,3%, og hlutfall tilkynninga þar sem heilsu eða lífi ófædds barns var stefnt í hættu var 0,7% allra tilkynninga.

Áhættuhegðun barns

Mest fjölgaði tilkynningum í flokki áhættuhegðunar á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 samanborið við árið áður, eða um 16,1%. Að auki fjölgaði tilkynningum í nær öllum undirflokkum.

Á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 miðað við árið á undan var fjölgunin mest í tilkynningum um að barn neytir áfengis eða annarra efna sem eru líkleg til að valda því skaða, en þar fjölgaði tilkynningum um 89,9% eða úr 457 tilkynningum í 868 tilkynningar. Fjölgunin er meiri hjá stúlkum en hjá drengjum. Í flokknum barn kemur sér undan forsjá fjölgaðitilkynningar 34,5% og í flokknum barn beiti ofbeldi fjölgaði tilkynningum um 25,6% á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 miðað við sama tímabil árið á undan.

Vanræksla

Tilkynningum vegna líkamlegrar vanrækslu fækkaði um 12,7% á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 miðað við sama tímabil árið 2023, eftir fjölgun á árinu 2023. Tilkynningum vegna umsjónar og eftirlits fjölgaði um 8,6%. Við slíkum tilkynningum er merkt hvort að tilkynning berist vegna þess að foreldri er í áfengis- og/eða fíkniefnaneyslu og fækkaði slíkum tilkynningum um 2,3% á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 miðað við sama tímabili árið á undan.

Ofbeldi

Tilkynningar á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 vegna ofbeldis voru 7,3% fleiri en á sama tímabili árið á undan. Tilkynningum vegna líkamlegs ofbeldis fjölgaði um 19,9%, tilkynningum vegna tilfinningalegs ofbeldis fjölgaði um 3,5% en tilkynningum fækkaði vegna kynferðisofbeldis um 5,3%.

Flestar tilkynningar berast frá lögreglu

Líkt og áður bárust flestar tilkynningar frá lögreglu eða 39,7% fyrstu níu mánuði ársins 2024. Næst flestar tilkynningar bárust frá skólum og þar á eftir heilbrigðisþjónustu, í takt við sama tímabil fyrri ára. Þá má sjá að stór hluti tilkynninga er að berast úr nánasta umhverfi barns. Samanlagður fjöldi tilkynninga frá barninu sjálfu, ættingjum barns, nágrönnum og öðru nærumhverfi eru 1.808 eða 14,7% allra tilkynninga.

Samanlagður fjöldi barna sem tilkynnt var um á fyrstu níu mánuðum ársins 2024 var 9.333 börn en 8.484 börn árið á undan og 7.830 árið 2022. Þess ber að geta að tölur um fjölda barna sem tilkynnt var um eru fengnar þannig að fjöldi barna sem tilkynnt var um í hverjum mánuði fyrir sig er lagður saman. Tilkynningar geta borist um sama barnið á milli mánaða, þannig að hér er ekki alltaf um að ræða fjölda einstaklinga yfir ákveðið tímabil heldur samanlagðan heildarfjölda barna í hverjum mánuði fyrir sig.

Hér má finna skýrsluna í heild sinni.