Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rekstrarleyfi til farmflutninga

Umsókn um rekstrarleyfi til farmflutninga / Endurnýjun

Þeir aðilar sem stunda farmflutninga í atvinnuskyni þurfa til þess rekstrarleyfi. Þetta á við þegar:

  • leyfð heildarþyngd fer yfir 3,5 tonn (eða yfir 2,5 tonn í farmflutningum á milli landa)

  • leyfilegur hámarkshraði ökutækjanna er 45 kílómetrar á klukkustund eða meiri

Flutningur í atvinnuskyni er flutningur á farmi þegar flutningsþjónusta er seld sérstaklega og flytjandi starfar við flutningsþjónustu.

Ferlið

  1. Sækja námskeið hjá Ökuskólanum í Mjódd

  2. Sækja um rekstrarleyfi hjá Samgöngustofu og skila inn öllum gögnum

  3. Uppfylla skilyrði fyrir rekstrarleyfi

  4. Bílar sem tilheyra rekstrinum eru skráðir í notkunarflokkinn Atvinnurekstur (RL)

  5. Rekstrarleyfi gefið út til fimm ára eða til bráðabirgða vegna námskeiðs

Fylgigögn

Mikilvægt er að skila inn öllum fylgigögnum með umsókn.

  • Áritaður ársreikningur eða staðfest skattframtal umsækjanda um fullnægjandi fjárhagsstöðu.
    Hægt er að óska eftir því í umsókn að Samgöngustofa sæki ársreikning fyrir lögaðila í ársreikningaskrá Skattsins (á ekki við um einstaklinga í atvinnurekstri eða fyrirtæki sem eru skráð sf., slf. eða svf.)

  • Staðfesting á að opinber gjöld séu ekki í vanskilum - Island.is eða Skatturinn

  • Sakavottorð forráðamanns - Island.is

  • Ef umsækjandi hefur verið með skráð lögheimili erlendis þarf einnig að skila sakavottorði frá viðkomandi landi/löndum

  • Listi yfir bílnúmer þeirra ökutækja sem verða í rekstri

Umsækjandi þarf að hafa tilkynnt starfsrekstur til Skattsins en atvinnugreinaflokkun viðkomandi reksturs þarf að tengjast atvinnugreininni með einhverjum hætti.

Frekari upplýsingar um fylgigögn er að finna undir skilyrði.

Afgreiðsla umsókna

  • Samgöngustofa gefur út rekstrarleyfi til fimm ára þegar öllum skilyrðum er fullnægt og greiðsla hefur borist

  • Þegar gögn vantar með umsókn eða skilyrðum er ekki fullnægt, lætur Samgöngustofa vita með tölvupósti

  • Afgreiðsla almenns rekstrarleyfis er allt að 15 virkir dagar

Kostnaður

  • Kostnaður við rekstrarleyfi er samkvæmt gjaldskrá Samgöngustofu og er 13.934 krónur

  • Kostnaður við leyfishafanámskeið fer eftir gjaldskrá ökuskóla

  • Greiða þarf fyrir þau vottorð og gögn sem afla þarf hjá öðrum stofnunum

Umsókn um rekstrarleyfi til farmflutninga / Endurnýjun

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa