Hægt er að bæta ökuskírteini í síma á Mínum síðum á Ísland.is eða með Ísland.is appinu.
Með Ísland.is appinu:
Þú sækir Ísland.is appið í App store
Skráir þig inn í appið með rafrænum silríkjum
Velur 'Skírteini' í appinu
Smellir á ökuskírteinið
Ýtir á 'Add to Wallet' neðst á skjánum
Þá er skírteini bætt í Apple Wallet.
Á Mínum síðum:
Þú skráir þig inn á mínar síður með rafrænum skilríkjum
velur 'Skírteini'
Velur "Senda í síma"
Skannar QR kóðann með myndavélinni í símanum
Velur "ADD" í símanum í hægra efra horni
Þá er skírteini bætt í Apple Wallet.
Færðu villu við umsókn?
Ef þú færð villu þegar þú hefur lokið umsókninni er það vegna þess að upplýsingar vantar í ökuskírteinagrunn, t.d. mynd. Líklega ert þú með gamalt ökuskírteini á pappír, gefið út fyrir 1998, en ekki nýrri plastkortin. Best er að hafa samband við sýslumann á þínu svæði til að endurnýja ökuskírteinið og fá nýju útgáfuna.
Við það opnast möguleikinn á að fá stafrænt ökuskírteini.
Þjónustuaðili
Sýslumenn