Sækja stafrænt ökuskírteini
Hægt er að nálgast stafrænt ökuskírteini á tvo vegu:
Beint úr Ísland.is appinu, við mælum með því. Sækja Ísland.is appið
Á mínum síðum Ísland.is, hnappur hér fyrir ofan.
Leiðbeiningar fyrir Android síma og iPhone síma.
Upplýsingar
Stafrænt ökuskírteini er fyrir öll sem hafa ökuréttindi og eru með snjallsíma. Skírteinið sannar að viðkomandi er með gilt ökuskírteini og á því koma fram sömu upplýsingar og á hefðbundnum ökuskírteinum.
Stafræn ökuskírteini eru jafngild hefðbundnum ökuskírteinum en þau gilda eingöngu á Íslandi.
Stafrænt ökuskírteini staðfestir að viðkomandi sé með gild ökuréttindi og á því koma fram sömu upplýsingar og á hefðbundnum ökuskírteinum.
Skoða má upplýsingar um þín réttindi, réttindaflokka og gildistíma á Mínum síðum
Stafræn ökuskírteini eru gefin út af Ríkislögreglustjóra í gegnum Ísland.is á grundvelli reglugerðar nr. 830/2011 um ökuskírteini.
Stafrænt ökuskírteini gildir til að sanna ökuréttindi fyrir lögreglu.
Stafrænt ökuskírteini gildir ekki við endurnýjun á rafrænum skilríkjum (slíkt krefst framvísunar vegabréfs eða hefðbundins ökuskírteinis).
Skírteinið er fyrir notendur með Android og Apple síma. Eingöngu er hægt að setja ökuskírteinið upp á einu símtæki í einu. Ef það er sett upp á öðrum síma afvirkjast það í tækinu sem það var í áður.
Viltu sannreyna framvísað stafrænt ökuskírteini?
Hugbúnaðarskanni sem gefin er út í smáforriti Ísland.is er hluti af tæknilausn stafrænna ökuskírteina og sannreynir á öruggan hátt réttmæti skírteinis sem handhafi framvísar. Skanninn er opinn öllum sem vilja hann nota og má nálgast í Ísland.is appinu
Nánar í persónuverndarstefnu.
Tengt efni
Leiðbeiningar
Stafrænt ökuskírteini spurt og svarað
Þjónustuaðili
Sýslumenn