Nýskráning og innflutningur skemmtibáta
Innflutningur skemmtibáta smíðaðir eftir 1998
Skemmtibátar smíðaðir eftir 16.júní 1998 skulu vera CE-merktir
Ferli
Innflutningur - Senda þarf ESB - samræmisyfirlýsingu og tollskýrslu til Samgöngustofu til samþykktar til að hægt sé að leysa bát úr tolli.
Upphafsskoðun - fyrir báta yfir 6 metrum
Skráning á skipaskrá - fyrir báta yfir 6 metrum
Útgáfa haffærisskírteinis - fyrir báta yfir 6 metrum
Bátar smíðaðir fyrir 16.júní 1998
Til að láta samþykkja skemmtibáta smíðaða fyrir 16. júní 1998 þarf að fylgja sama ferli og fyrir atvinnubáta undir 15 metrum mestu lengdar. Hægt er að nálgast upplýsingar um það ferli á síðunni nýskráning skipa og báta í atvinnurekstri.
Þjónustuaðili
SamgöngustofaTengd stofnun
Skatturinn