Hlutdeildarlán
Samþykki fyrir byggingu íbúða sem falla undir hlutdeildarlán
Byggingaraðilar sem ætla að byggja íbúðir sem uppfylla skilyrði fjármögnunar með hlutdeildarláni þurfa að gera samstarfssamning við HMS og fá forsamþykki.
Hefja samstarfs við HMS
Byggingaraðili skráir sig hjá HMS með því að senda vefpóst byggingaradilar@hms.is
HMS móttekur skráningu og sendir byggingaraðila samning um væntanlegt samstarf
Byggingaraðili upplýsir HMS um byggingaráform
Samráðsfundur HMS og byggingaraðila um byggingaráform og íbúðaþörf
HMS veitir byggingaraðila samþykki fyrir að íbúðir uppfylli skilyrði til hlutdeildarlána. Samþykki getur verið tvenns konar:
Forsamþykki fyrir íbúðum þar sem bygging er ekki hafin. HMS er heimilt að afturkalla forsamþykki reynast íbúðir ekki uppfylla skilyrði um hlutdeildalán með tilliti til stærðar og söluverðs þeirra.
Samþykki fyrir íbúðum sem eru tilbúnar eða í byggingu
Byggingaraðili auglýsir íbúðir sem fengið hafa samþykki eða forsamþykki til sölu með möguleika á Hlutdeildarláni og notar til þess markaðsefni (logo) HMS um hlutdeildarlán.
HMS og byggingaraðili funda reglulega þar sem byggingaraðili upplýsir HMS um væntanleg byggingaráform næstu 24 mánaða og HMS upplýsir byggingaraðila um íbúðaþörf.
Þjónustuaðili
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun