Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Aðild að íslenskri tryggingavernd (.pdf)

Þegar einstaklingur flytur búsetu sína erlendis vegna atvinnu er meginreglan sú að hann falli undir almannatryggingar þess lands sem flutt er til.

Þú hefur möguleika á að halda íslenskum almannatryggingum þegar þú starfar í útlöndum.

Þá safnar þú réttindum á Íslandi á meðan þú býrð og starfar erlendis.

Almennar upplýsingar

Þú getur fengið:

  • A1-vottorð er þegar þú vinnur innan Evrópska Efnahagssvæðisins (EES), í EFTA-landi, Færeyjum eða Grænlandi

  • tryggingayfirlýsingu þegar þú vinnur utan EES

Vottorðið og yfirlýsingin staðfesta aðild að íslenskum almannatryggingum og koma í veg fyrir tvígreiðslu á tryggingagjaldi. Með vottorði og yfirlýsingu er tryggingagjald bara greitt á Íslandi, en ekki í landinu sem starfað er í.

Þú og vinnuveitandi þinn þurfið að uppfylla mismunandi skilyrði eftir því hvaða landi vinnan fer fram í.

Almannatryggingar

Undir almannatryggingakerfið telst til dæmis:

  • atvinnuleysistryggingasjóður,

  • lífeyrissréttindi, eins og elli- og örorkulífeyrir

  • fæðingarorlofssjóður,

  • barnabætur.

Sérstakar reglur gilda um sjúkratryggingar og búsetu erlendis.

Umsóknaferlið

  • Vinnuveitandi eða launþegi sækir um vottorð fyrir útsent starfsfólk sem starfar tímabundið í öðru EES-landi.

  • Sjálfstætt starfandi einstaklingar sækja sjálfir um vottorðið.

  • Launþegar sem starfa í fleiri en einu EES-landi sækja sjálfir um vottorðið.

  • Erlent starfsfólk á Íslandi sækir um í heimalandi sínu og sendir afrit til TR.

Umsóknir þurfa að berast 4 vikum fyrir brottför af Íslandi, nema annað sé tekið fram.

Innheimta tryggingagjalds

Innheimta tryggingagjalds er í umsjón skattayfirvalda. Vinnuveitandi ber í flestum tilvikum ábyrgð á að skila tryggingagjaldi. Einstaklingur getur séð um það sjálfur, til dæmis ef hann vinnur hjá erlendri starfsmannaleigu.

Þjónustuaðili

Trygg­inga­stofnun