Feðrun barns
Barn á rétt á að þekkja báða foreldra sína og að þekkja uppruna sinn. Móður er skylt að feðra barn sitt innan sex mánaða frá fæðingu þess. Hafi feðrun ekki farið fram innan sex mánaða frá fæðingu barnsins sendir sýslumaður móður áskorun um að feðra barnið.
Réttindi barns og föður
Feðrun hefur meðal annars í för með sér að:
Faðir getur farið með forsjá barns.
Faðir og barn eiga gagnkvæman umgengnisrétt.
Faðir er framfærsluskyldur gagnvart barni.
Faðir og barn taka arf eftir hvort annað.
Barn má bera nafn föður sem kenninafn.
Þjónustuaðili
Sýslumenn