Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Endurnýjun ökuskírteinis sem er að renna út

Endurnýjun ökuskírteinis

Því miður er ekki hægt að gefa út ný plastökuskírteini fyrr en í febrúar 2025. Þangað til verður notast við stafræn ökuskírteini. Nánar um framleiðslu nýrra ökuskírteina.

Þú getur endurnýjað ökuskírteini að loknum gildistíma þess ef þú fullnægir enn skilyrðum.

Ef gildistími rennur út eftir 65 ára þarf að sækja um endurnýjun fyrir 65 ára og eldri.

Kostnaður

Endurnýjun ökuskírteinis kostar 8.600 krónur.

Skilyrði

  • Að umsækjandi hafi ekki verið sviptur ökuréttindum.

  • Að umsækjandi sé með fasta búsetu á Íslandi.

  • Sé umsækjandi með eldri útgáfu af ökuskírteini þarf nýja passamynd.

  • Þurfi umsækjandi að nota gleraugu eða linsur við akstur eða eigi við annan heilsufarsvanda að stríða sem getur haft áhrif á akstur þarf að skila læknisvottorði frá heimilislækni. 

  • Ef meira en tvö ár eru liðin frá því að gildistími rann út þarf umsækjandi að taka próf í aksturshæfni.

Viðbótarskilyrði vegna meiraprófs

  • Við endurnýjun meiraprófs þarf ávallt að skila inn læknisvottorði

Umsóknarferli

Fylla þarf út umsókn um endurnýjun ökuskírteinis og skila henni á einhverja skrifstofu sýslumanns, óháð því hvar umsækjandi er með lögheimili á Íslandi.

Endurnýjun meiraprófs án atvinnuréttinda

Hægt er að endurnýja meirapróf án þess að sækja endurmenntunarnámskeið. Hafi umsækjandi ekki sótt endurmenntunarnámskeið, fær viðkomandi ekki tákntölu atvinnuréttinda í ökuskírteinið sitt en heldur meiraprófsréttindum sínum.

Endurnýjun meiraprófs með atvinnuréttindum

Sækja skal endurmenntunarnámskeið áður en sótt er um endurnýjun ökuskírteinis í D1- og D-flokk til farþegaflutninga í atvinnuskyni og fyrir C1- og C-flokk til vöruflutninga í atvinnuskyni.

Endurnýjun ökuskírteinis

Þjónustuaðili

Sýslu­menn

Ábyrgðaraðili

Sýslu­menn

Sýslumenn

Höfuð­borg­ar­svæðið

Mán. til fim. 8:30 - 15
Fös. 8:30 - 14

Vest­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Vest­firðir

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 13:30

Norð­ur­land vestra

Mán. til fös. 9 - 15

Norð­ur­land eystra

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9 - 14

Aust­ur­land

Mán. til fim. 9 - 15
Fös. 9-14

Suður­land

Mán. til fös. 9 - 15

Vest­manna­eyjar

Mán. til fim. 9:15 - 15
Fös. 9:15 - 14

Suðurnes

Mán. til fös. 8:30 - 15