Allir umsækjendur um dvalarleyfi þurfa
að geta sannað á sér deili með gildu vegabréfi
að gefa réttar upplýsingar um tilgang dvalarinnar á Íslandi
að uppfylla eftirfarandi grunnskilyrði
Umsækjandi verður að sýna fram á að framfærsla hans sé trygg þann tíma sem hann sækir um að dveljast hér á landi. Trygg framfærsla þýðir að hafa næg fjárráð til að geta séð fyrir sér sjálfur.
Útlendingastofnun er heimilt að afla skattframtala og gagna frá skattayfirvöldum til staðfestingar á tryggri framfærslu.
Upphæð
Útlendingastofnun miðar við að mánaðarleg fjárráð umsækjenda séu að lágmarki:
239.895 krónur fyrir einstaklinga.
383.832 krónur fyrir hjón.
119.948 krónur til viðbótar vegna fjölskyldumeðlims 18 og eldri.
Viðmiðin samsvara grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar, sjá reglur um fjárhagsaðstoð. Upphæðir miðast við tekjur fyrir skatt.
Tímabil
Framfærsla útlendings þarf að vera trygg á gildistíma dvalarleyfis. Það þýðir að verði dvalarleyfi gefið út til eins árs þarf að sýna fram á trygga framfærslu fyrir eitt ár.
Undanþágur frá skilyrðinu um sjálfstæða framfærslu
Allir umsækjendur um dvalarleyfi þurfa að sýna fram á sjálfstæða framfærslu, nema í eftirfarandi undantekningartilvikum:
Fyrir barn, yngra en 18 ára, sem er á framfæri foreldris eða forsjáraðila sem búsettur er hérlendis, þarf ekki að sýna fram á sjálfstæða framfærslu.
Fyrir einstakling eldri en 18 ára,
sem hefur haft samfellt dvalarleyfi hér á landi frá því hann var barn,
stundar nám eða störf hér á landi,
býr hjá foreldri og
er hvorki í hjúskap né sambúð
er framfærsluviðmið 50% af lágmarksframfærslu einstaklings, það er 119.948 krónur á mánuði. Til viðbótar við þá framfærslu sem foreldri eða forsjáraðili þarf að sýna fram á fyrir sjálfan sig og aðra fjölskyldumeðlimi.
Umsækjandi þarf að sýna fram á sjálfstæða framfærslu ef hann stundar vinnu og er ekki í námi. Umsækjanda sem er í námi er heimilt að vera á framfæri foreldris.
Hjúskaparmaki þarf ekki að sýna fram á sjálfstæða framfærslu. Vegna framfærsluskyldu á milli hjóna samkvæmt hjúskaparlögum er nægjanlegt að annar aðili í hjúskap sýni fram á næga framfærslu fyrir báða.
Athugið að sambúð er ekki jafngild hjúskap að þessu leyti. Ekki er framfærsluskylda á milli sambúðarfólks og þarf umsækjandi því að sýna fram á sjálfstæða framfærslu sé hann í sambúð.
Foreldri 67 ára eða eldra sem er á framfæri barns eða barna sinna hér á landi þarf ekki að sýna fram á fulla sjálfstæða framfærslu. Fyrir það er framfærsluviðmið 50% af lágmarksframfærslu einstaklings, það er 119.948 krónur á mánuði, til viðbótar við framfærslu annara fullorðinna einstaklinga á heimilinu.
Vistfjölskylda þarf að sýna fram á framfærslu fyrir au pair. Viðbótarframfærsla miðast við 50% af lágmarksframfærslu einstaklings, það er 119.948 krónur auk launakostnaðar au-pair að upphæð 60.000 kr. fyrir hverjar fjórar vikur í starfi.
Hvað telst ekki trygg framfærsla
Greiðslur í formi félagslegrar aðstoðar ríkis eða sveitarfélags (aðrar en húsnæðisbætur). Hafi umsækjandi þegið slíkan styrk og getur ekki sýnt fram á fullnægjandi framfærslu með öðrum hætti, verður dvalarleyfi synjað.
Meðlagsgreiðslur og barnalífeyrir þar sem þeim er ætlað að standa undir framfærslu barns.
Framfærsla þriðja aðila, í öðrum tilvikum en fram kemur framar í þessari umfjöllun
Eignir aðrar en bankainnstæður (til dæmis fasteignir) og arður af fyrirtækjum, vextir eða aðrar greiðslur sem ekki er tryggt hvort eða hvenær eru lausar til útborgunar
Reiðufé telst ekki fullnægjandi staðfesting á framfærslu.
Leggja þarf fram staðfestingu á því að umsækjandi hafi keypt sjúkratryggingu
sem gildir á Íslandi,
í minnst sex mánuði frá skráningu lögheimilis umsækjanda á Íslandi,
að lágmarksupphæð 2.000.000 kr.
Sex mánuðum eftir skráningu lögheimilis á Íslandi verður dvalarleyfishafi sjálfkrafa sjúkratryggður á Íslandi.
Þegar sótt er um dvalarleyfi mega ekki liggja fyrir atvik sem valdið geta því að umsækjanda verði meinuð landganga eða dvöl hér á landi.
Þetta þýðir að þú mátt ekki
hafa á síðustu fimm árum afplánað refsingu erlendis eða verið dæmdur þar til refsingar fyrir háttsemi sem að íslenskum lögum getur varðað fangelsi lengur en þrjá mánuði
hafa verið dæmdur hér á landi til refsingar eða til að sæta öryggisráðstöfunum fyrir háttsemi sem getur varðað fangelsi lengur en þrjá mánuði eða oftar en einu sinni verið dæmdur til fangelsisrefsingar á síðustu þremur árum
Sérstök skilyrði fyrir dvalarleyfi á grundvelli atvinnu
Þú verður að vera 18 ára eða eldri.
Þú verður að fá veitt viðeigandi atvinnuleyfi frá Vinnumálastofnun á grundvelli tiltekins starfs hjá tilteknum vinnuveitanda.
Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga þarf sérfræðiþekking umsækjanda að
vera nauðsynleg atvinnurekandanum og
fela í sér háskóla-, iðn-, list- eða tæknimenntun sem viðurkennd er hér á landi.
Mikilvægt er að kynna sér vel frekari skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis vegna starfs sem krefst sérfræðiþekkingar á heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga er skilyrði að starfsfólk fáist hvorki á innlendum vinnumarkaði né á EES/EFTA-svæðinu eða Færeyjum.
Mikilvægt er að kynna sér vel frekari skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis vegna skorts á starfsfólki á heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga er skilyrði að starfið sé vegna starfa íþróttafólks hjá íþróttafélagi innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. Á heimasíðu sambandsins má finna yfirlit yfir aðildarfélögin.
Mikilvægt er að kynna sér vel frekari skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis fyrir íþróttafólk á heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga er skilyrði að starfið sé vegna sérhæfðra starfa á vegum atvinnurekanda sem ekki hefur starfsstöð hér á landi. Jafnframt er skilyrði að fyrir liggi samstarfssamningur um kennslu-, fræði- eða vísindastörf eða þjónustusamningur á milli erlends þjónustufyrirtækis og innlends notendafyrirtækis.
Mikilvægt er að kynna sér vel frekari skilyrði fyrir veitingu atvinnuleyfis fyrir sérhæfða starfsmenn á grundvelli samstarfs- eða þjónustusamnings á heimasíðu Vinnumálastofnunar.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun