Sótt er um endurnýjun dvalarleyfis með stafrænum hætti á netinu. Greiða verður fyrir umsóknina í síðasta skrefi umsóknarferilsins til þess að geta sent hana inn.
Nauðsynlegt er að vera með rafræn skilríki til að fylla út umsóknina, sjá upplýsingar um afgreiðslustaði rafrænna skilríkja.
Athugið að aðeins er hægt að nota þessa umsókn við endurnýjun núverandi leyfis. Ekki er hægt að nota þessa umsókn ef sótt er um dvalarleyfi á öðrum grundvelli, til dæmis ef handhafi námsmannaleyfis vill sækja um dvalarleyfi á grundvelli atvinnu.
Þessi umsókn er ekki fyrir þá sem hafa fengið mannúðarleyfi á Íslandi vegna fjöldaflótta frá Úkraínu, sjá nánar um framlengingu dvalarleyfa vegna fjöldaflótta frá Úkraínu.
Kostnaður
Gjald fyrir umsókn um endurnýjun dvalarleyfis er 16.000 krónur
Þú þarft að greiða fyrir umsóknina í síðasta skrefi stafræna umsóknarferlisins til þess að geta sent inn umsóknina. Ekki greiða fyrir stafræna umsókn með millifærslu.
Afgreiðslugjald er ekki endurgreitt þótt umsækjandi hætti við umsókn.
Umsóknarferli
Þú þarft að sækja um endurnýjun dvalarleyfis innan gildistíma núverandi leyfis. Vinsamlegast ekki senda inn umsókn um endurnýjun þegar meira en tveir mánuðir eru eftir af gildistíma núverandi leyfis.
Ef þú sækir um endurnýjun dvalarleyfis eftir að gildistími fyrra leyfis er útrunninn, verður farið með umsóknina eins og um fyrsta dvalarleyfi þitt sé að ræða.
Afgreiðslutími
Afgreiðslutími endurnýjunar er að hámarki 90 dagar frá því að fullnægjandi gögn hafa borist, nema um flóknari umsóknir sé að ræða sem þarfnast frekari vinnslu. Ef þú sendir fullnægjandi fylgigögn með umsókn tekur vinnsla umsóknar almennt styttri tíma.
Endurnýjun samþykkt
Ef þú uppfyllir áfram skilyrðin fyrir dvalarleyfi, verður leyfið þitt endurnýjað og þú færð nýtt dvalarleyfiskort.
Þegar nýtt kort fer í framleiðslu færðu tölvupóst. Fimm dögum síðar geturðu sótt kortið á sama stað og þú fórst síðast í myndatöku.
Myndataka ef mynd er of gömul
Ef myndin sem við eigum af þér er eldri en fjögurra ára getum við ekki notað hana til að panta nýtt kort. Þú verður þá látin/látinn vita að þú þurfir að mæta í myndatöku í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða til sýslumanna utan höfuðborgarsvæðis.
Það er nauðsynlegt að panta tíma í myndatöku hjá Útlendingastofnun. Mundu að taka með þér vegabréf til að sanna hver þú ert.
Endurnýjun synjað
Ef þú uppfyllir ekki skilyrði fyrir endurnýjun dvalarleyfis er umsókninni synjað. Það þýðir að þú færð ekki það dvalarleyfi sem þú sækir um. Synjanir umsókna um dvalarleyfi eru skriflegar stjórnvaldsákvarðanir sem má kæra til kærunefndar útlendingamála innan 15 daga frá þeim degi sem þú móttekur synjun. Hér má finna nánari upplýsingar um synjanir og heimild til kæru.
Þjónustuaðili
Útlendingastofnun