Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Dvalarleyfi fyrir maka

Dvalarleyfi fyrir maka

Dvalarleyfi fyrir maka er fyrir einstakling sem vill flytja til Íslands til að búa með maka sínum sem hefur dvalarrétt hér á landi. Leyfið má veita á grundvelli hjónabands eða sambúðar. Orðið maki nær bæði yfir hjúskaparmaka og sambúðarmaka.

Ef makinn sem hefur dvalarrétt á Íslandi er ríkisborgara EES/EFTA-ríkis er hægt að sækja beint um dvalarskírteini fyrir aðstandanda EES/EFTA-borgara.

Umsókn

Umsóknir er aðeins hægt að leggja fram á pappírsformi.

Þeim má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar eða með því að senda umsókn í bréfpósti. Áður en það er gert er nauðsynlegt að greiða fyrir umsókn með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókn til staðfestingar, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.

Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi
Ísland

Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.

Kostnaður

Afgreiðslugjald er 16.000 krónur, sjá upplýsingar um greiðslu afgreiðslugjalds.

Afgreiðslutími

Hægt er að fylgjast með því hvaða umsóknir hafa verið teknar til vinnslu á síðunni staða mála og afgreiðslutími dvalarleyfa.

Dvöl á landinu meðan sótt er um

Athugaðu hvort þú sért áritunarskyld/ur.

Lög

Dvalarleyfið er veitt á grundvelli 70. greinar laga um útlendinga.

Dvalarleyfi fyrir maka

Þjónustuaðili

Útlend­inga­stofnun