Fara beint í efnið
Útlendingastofnun Forsíða
Útlendingastofnun Forsíða

Útlendingastofnun

Afgreiðslugjald

Greiða þarf gjald vegna afgreiðslu umsóknar um dvalarleyfi, ríkisborgararétt og vegabréfsáritun.

Gjaldið er ekki endurgreitt eftir að umsókn hefur verið lögð inn. Fjárhæð gjalds er ákvörðuð í lögum um aukatekjur ríkissjóðs.

Stafrænar umsóknir á netinu

Ef sótt er um með stafrænni umsókn á netinu er greitt fyrir umsóknina í síðasta skrefi stafræna umsóknarferlisins.

Ekki greiða fyrir stafrænar umsóknir með millifærslu.

Þetta á við um stafrænar umsóknir um íslenskan ríkisborgararétt, ótímabundið dvalarleyfi og endurnýjun dvalarleyfis.

Umsóknir á pappír

Fyrir umsóknir sem lagðar eru inn á pappírsformi er nauðsynlegt að greiða með millifærslu í banka og þarf greiðslukvittun að fylgja umsókninni til staðfestingar.

Ógreidd umsókn verður endursend umsækjanda.

Umsóknum á pappír má skila í þar til gerðan póstkassa í anddyri Útlendingastofnunar að Dalvegi 18 eða með því að senda umsókn í bréfpósti á sama heimilisfang.

Útlendingastofnun (sjá á korti)
Dalvegi 18
201 Kópavogi

Einnig er hægt að leggja inn umsókn og greiða fyrir í afgreiðslu Útlendingastofnunar eða hjá embættum sýslumanna utan höfuðborgarsvæðisins.

Leiðbeiningar fyrir greiðslu afgreiðslugjalds með millifærslu

  • Greiða þarf fyrir pappírsumsókn áður en hún er póstlögð.

  • Greiðslukvittun verður að fylgja með pappírsumsókn, ef kvittun vantar verður umsóknin endursend í almennum pósti. Sama á við um umsókn sem ekki hefur verið greitt fyrir að fullu.

  • Fæðingardagur og nafn umsækjanda þurfa að koma fram í skýringu við millifærslu.

  • Á greiðslukvittun þurfa þessar upplýsingar að koma fram

    • nafn greiðanda

    • fæðingardagur / kennitala greiðanda

    • viðtakandi greiðslu

    • skýring: nafn og fæðingardagur umsækjanda

    • upphæð og

    • dagsetning greiðslu.

  • Gera þarf ráð fyrir greiðsluþóknun erlendra banka þegar greiðsla fer fram fyrir milligöngu banka sem ekki eru með starfstöð á Íslandi.

  • Ekki greiða fyrir stafrænar umsóknir með millifærslu. Greiðsla fyrir slíkar umsóknir er framkvæmd í síðasta skrefi stafræna umsóknarferlisins.

Innlend greiðsla

Reikningsnúmer: 0515-26-410424
Kennitala Útlendingastofnunar: 670269-6399

Erlend greiðsla

IBAN: IS05 0515 26 410424 670269 6399
SWIFT CODE: GLITISRE
Nafn banka: Íslandsbanki hf.
Staðsetning banka: Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík

Gjaldskrá